Skipulag er lykilinn að árangri þegar kemur að hollu mataræði!
„Yfir-nótt“ hafragrautar eru ein af þessum frábæru lausnum sem spara tíma. Þeir eru líka hrikalega góðir og hægt að útfæra á ótal vegu. Þú getur útbúið svona hafragraut fyrir 3 daga í senn og geymt í kæli. Gripið svo með þér sem snöggan morgunmat eða léttan hádegismat.
Innihald:
- 70 gr haframjöl eða tröllhafrar
- 15 gr hrátt kakóduft
- 60 gr jógúrt (vegan eða venjuleg)
- 250 ml vatn
- 20 gr súkkulaði pea prótínduft frá Pulsin
- 7 gr möluð chiafræ
- 10 ml hlynsíróp (má sleppa en passar mjög vel með)
Aðferð:
- Hrærðu saman jógúrt, kakóduft, prótínduft, hlynsíróp og vatn
- Blandaðu nú höfrum og chia fræjum samanvið
- Geymdu í lokuðu íláti í ísskáp yfir nótt
- Hægt að þynna út með smá jurtamjólk ef vill
- Toppaðu með hverju sem hugurinn girnist t.d. berjum, hnetusmjöri, kakónibbum….
Þessi uppskrift er fengin frá peachypalate.com í samstarfi við Pulsin.
Um höfundinn:
I’m Shel but some people call me “Peachy”…I’m the food loving, fitness fanatic, blogger behind Peachy Palate, a website which is now my hub for all the paleo, keto and grain free recipes I create, hoping to inspire people to think outside the box, eating whole foods that truly nourish.


