Ég elska baunir! Ég get eiginlega ekki sagt hvaða gerð af baunum eru mínar uppáhalds en svartar baunir eru þarna mjög ofarlega. Þess vegna legg ég mig fram í því að reyna að koma eins mikið af baunum ofan í mig og fjölskylduna mína og mögulegt er.
Baunir eru göldrum líkar og eitt það hollasta sem við getum borðað og ég leyfi mér eiginlega að fullyrða það að ég held að mörgum íslendingum vanti meiri baunir í mataræði sitt. Þær eru ódýrar, einfalt að elda þær og geta orðið að öllu frá hamborgurum yfir í súkkulaðiköku
Baunir eru próteinríkar og fullar af vítamínum og trefjum en trefjar eru eitthvað sem að mörgum vantar og sérstaklega trefjarnar sem er að finna í baunum.
Baunir innihalda nefnilega gífurlega mikið magn af leysanlegum trefjum sem eru sömu trefjar og finnast í huski. Sem er kannski ástæðan fyrir því að sumir vilja meina að þeir prumpi svkalega mikið af baunum. En ef að þú ert manneskja sem byrjar að prumpa á fullu um leið og þú borðar eina litla baun þá gæti það verið merki um það að þú þú borðir ekki nægilega mikið af trefjum og þurfir einfaldlega að borða meira af baunum. Prumpið er merki um það að baunirnar séu að gera sitt gagn í meltingarveginum og það
sé mikið þarna fyrir þær að hreinsa út. Ef maður borðar leysanlegar trefjar án fitu þá hreinsa þær nefnilega allan meltingarveginn og geta lagað hin ýmsu meltingarvandamál sem margir í nútíma samfélagi eru að díla við. En góð melting er lykillinn að góðri heilsu, fallegri húð og heilbrigðu hári. Svo það besta sem að þú getur gert fyrir þig í dag er að fá þér baunir í matinn- og auðvitað lífrænar frá Biona.
Ofur fljótlegt og einfalt Mömmutaco sem allir elska.
– Fyrir klassíska vísitölufjöllu er sniðugt að tvöfalda uppskriftina.
- 1 msk hitaþolin olía
- 1/2 laukur, hakkaður smátt
- 1 msk chiliduft
- 1 tsk cuminduft
- Sirka 1/4 tsk salt, meira ef þú þarft
- 1 dós af svörtum baunum frá Biona, muna að skola þær vel í sigti undir krana.
- 2 msk heimagert pico de gallo eða bara salsa úr krukku
- 4 tortillur pönnukökur (litlar eru bestar)
- 1 bolli rifið hvítkál eða rauðkál, ef þú ert í stuði geturðu gert einfalt vegan “hrásalat” með því að bara hræra kálinu með olífuolíu, limesafa, fersku koríander og jalapenjo, salti og pipar.. Smá mæjó ef að þú ert í þannig týpa eða í þannig stuði, en algjörlega óþarft!
- 1 stórt avókado, skorið í sneiðar ef þú ert ennþá í stuði geturðu líka stappað avókadóið með smá hvítlaukskryddi, limesafa og salti.
Meira salsa
Hitaðu olíuna á stórri pönnu á sirka miðlungs hita, bættu við lauknum og leyfðu honum að mýkjast í olíunni í sirka 2 mín, hrærðu af og til.
Bætti við chilliduftinu, cumin og og smá salti, leyfðu kryddinu aðeins að vakna og bættu svo baununum.
Settu lok á pönnuna og leyfðu öllu gúmmelaðinu að eldast á tæplega miðlungs hita í sirka 3 til 4 mín. Taktu lokið af og blíðlega stappaðu baunirnar með smá salsa eða pico de gallo, ekki gremja allar baunirnar leyfðu einhverjum að vera alveg heilar.
Taktu svo tortillurnar (sem þú ert aðeins búin að hita) og fylltu þær með baunamixi og toppaðu svo með avókadó, káli, meiri limesafa og kóríander.
Verði ykkur að góðu og njótið vel!
Eva Dögg er listrænn jógi sem hefur ástríðu fyrir heilsu- og umhverfismálum. Hún er fatahönnuður að mennt og hefur unnið sem yfirhönnuður hjá nokkrum dönskum tískumerkjum en eftir að hún flutti til Íslands hefur hún, fyrir utan það að kenna jóga og hugleiðslu, aðallega unnið við markaðsstörf fyrir mismunandi fyrirtæki en starfar nú sjálfstætt hjá Rvk Ritual. Eva er sem stendur að þróa sitt eigið „non toxic“ snyrtivörumerki en hún hefur búið til sín eigin krem og smyrsl um árabil. Þar fyrir utan er mikið að gera hjá henni við að halda úti námskeiðum í jóga og sjálfsrækt á Rvk Ritual.Instagram @evadoggrunars
Biona matvörurnar fást í helstu matvöruverslunum, netverslun Nettó, Krónu appinu og verslunum og netverslun Heilsuhússins.




