Hafragrautur er bara tímalaus klassík sem klikkar aldrei.
Þessi er alveg jafn góður í morgunmat og sem eftirréttur!
Innihald:
Í grautinn:
- 50 gr hafrar
- 225 ml möndlumjólk
- 1 msk Biona lífrænt kókossíróp
Ofaná:
- Frosin eða fersk hindber
- Banani í sneiðum
- 1 tsk kanilduft
- 1 kúfuð msk biona möndlusmjör
- Smá Biona lífrænt kókossíróp yfir allt
Aðferð:
- Setjið hafra, möndlumjólk og kókossíróp í pott og eldið við vægan hita þangað til grauturinn þykknar.
- Setjið grautinn í skál og toppið með berjum, banana, kanil, möndlusmjöri og kókossírópi.