Einfaldar falafelbollur sem er hægt að stinga í pítubrauð, pakka inn í vefju eða borða stakar með sósum og salat.
Sniðugt að gera helling og eiga í frysti þegar þú vilt töfra fram fljótlega máltíð.
Innihald:
- 1 sæt kartafla, afhýdd og skorin í stóra bita
- 1 dós Biona kjúklingabaunir, vatninu hellt af
- 200 gr kasjúhnetur lagðar í bleyti í a.m.k. 4 klst og vatninu svo hent
- 1 stórt egg
- 1 tsk cumin duft
- 1 tsk kóríander duft
- 2 msk saxað ferskt kóríander
- Cayenne pipar í skeiðarnefi
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt eða rifinn með rifjárni
- ½ tsk salt
- 85 gr þurrkuð Sólgæti trönuber, lögð í bleyti í 10 mín og vatninu svo hent
- 4 msk lífræn kókosolía frá Biona
- 150 gr grísk jógúrt til að bera fram með
- Lífæn sæt chilli sósa til að bera fram með
Aðferð:
- Sjóðið eða bakið sætu kartöfluna þangað til hún er meyr og elduð í gegn, maukið hana svo með gaffli í skál
- Setjið kjúklingabaunir og kasjúhnetur í matvinnsluvél og vinnið þangað til hvort tveggja er fínsaxað
- Blandið nú saman í skál; sætri kartöflu, kjúklingabaunum & kasjúhnetum, eggi, kryddum, hvítlauk og kóríander og blandið öllu vel saman með höndunum
- Bætið trönuberjum saman við
- Mótið kúlur úr blöndunni, gott er að nota matskeið til að mæla magnið.
- Fletjið kúlurnar örlítið út með lófanum
- Hitið 2 msk kókosolíu á pönnu og steikið í 2 mínútur á hvorri hlið við miðlungs hita
- Má líka baka í ofni við 175°C. Penslið þá falafel bollurnar með kókosolíunni og snúið þeim eftir 15 mínútur til að fá gullna húð á báðar hliðar.
- Kælið aðeins og berið svo fram með jógúrti, fersku kóríander og chilli sósu.
- Líka hægt að setja inn í pítubrauð, vefju eða borða sem aðalrétt með góðu salati.