Kókoslöguð rauðrófusúpa með hvítlauk og engifer

Rauðrófur eru með því hollara sem til er og þegar engifer og hvítlaukur eru líka með í partýinu getur þú verið viss um að kroppurinn mun þakka þér.

Þessi er einföld og hentar jafnt sem forréttur eða sem léttur aðalréttur með góður brauði eða salati.

Innihald:

  • 1 msk biona kókosolía
  • 1 stór laukur skorinn smátt
  • 3 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
  • 1 msk fínt söxuð engiferrót
  • 600ml grænmetissoð
  • 500gr rauðrófur, afhýddar og skornar í bita
  • 1 dós biona lífræn kókosmjólk

Aðferð:

  • Steikið laukinn uppúr kókosolíu við miðlungshita í meðalstórum potti þangað til hann er glær og ilmandi
  • Bætið hvítlauk og engifer saman við
  • Bætið rauðrófum og grænmetissoði útí og látið suðuna koma upp
  • Lækkið undir og látið súpuna malla í um 10 mínútur eða þar til rauðrófurnar eru meyrar
  • Takið súpuna af hitanum, hellið kókosmjólk útí og blandið með töfrasprota þar til súpan er mjúk