Heslihnetu prótínstykki með súkkulaðihjúp

Súkkulaði og heslihnetur er blanda sem klikkar ekki. Hér höfum við prótínríkt súkkulaðistykki sem gefur bæði orku og fyllingu sem endist. Góð blanda af kolvetnum, fitu OG prótíni sér til þess að blóðsykurinn helst í jafnvægi og þú sleppur við sykursjokkið.

Þessi uppskrift gerir um 10 meðalstór stykki. Snilld að eiga í frystinum.

Innihald:

  • 170 g hreint heslihnetusmjör (má líka nota möndlusmjör)
  • 40 g kakóduft
  • 280 ml heslihnetu eða möndlumjólk
  • 70 g ristaðar heslihnetur, saxaðar
  • 14 g kókosolía
  • 130 g Pulsin súkkulaði pea prótínduft
  • 60 ml hlynsíróp
  • 250 g dökkt súkkulaði, gróflega saxað

Aðferð:

  1. Setjið heslihnetusmjör, kakóduft, hlynsíróp, próteinduft og plöntumjólk í matvinnsluvél og vinnið vel saman
  2. Klæðið form (ca.20 x 20 cm en það skiptir ekki öllu máli, þykkt og lögun stykkjanna verður bara aðeins öðruvísi sem er í góðu lagi) með bökunarpappír.
  3. Þrýstið deiginu ofan í formið og dreifið jafnt úr því.
  4. Stráið söxuðum heslihnetum ofan á og þrýstið þeim ofan í deigið.
  5. Frystið í 30 mínútur.
  6. Takið út og skerið deigið í 10 bita. Setjið stykkin á disk klæddan bökunarpappír og stingið aftur inn í frysti þangað til súkkulaðið er tilbúið.
  7. Bræðið nú saman súkkulaði og kókosolíu á frekar lágum hita.
  8. Dýfið nú hverju stykki í súkkulaðið til að hjúpa þau allan hringinn. Gott er að nota gaffal og skeið eða töng til að lyfta þeim upp, láta mesta súkkulaðið drjúpa af og setja þau svo aftur á bökunarpappír til að harðna.
  9. Stykkin geymast í 2 vikur í kæli eða mánuð í frysti.
  10. Ef þú geymir þau í frysti er gott að taka þau út 5-10 mínútum áður en þú ætlar að njóta.

 

Þessi uppskrift er fengin frá peachypalate.com í samstarfi við Pulsin.

Um höfundinn:

I’m Shel but some people call me “Peachy”…I’m the food loving, fitness fanatic, blogger behind Peachy Palate, a website which is now my hub for all the paleo, keto and grain free recipes I create, hoping to inspire people to think outside the box, eating whole foods that truly nourish.