Helgarvöfflur

Hér er uppskrift sem allir ættu að prófa. Heilsuvöfflur sem munu svo sannarlega slá í gegn, tala nú ekki um ef súkkulaðismjörið er notað með :).

Hér kemur uppskriftin:

1 stk banani

1 stk egg

1 dl möndlusmjör (best heimatilbúið)

1 tsk matarsódi

1 msk sítrónusafi

1 tsk vanilludropar (má líka nota vanilluduft, þá mælum við með lífrænu frá Sonnentor, passið samt að nota aðeins meira en eina teskeið)

Þá er allt sett í blandara eða matvinnsluvél og maukað þar til áferðin er orðin slétt. Bakið í vöfflujárni.

Njótið :).

 

Höfundur: Kristín Steinarsdóttir matreiðslumaður