Uppskrift fyrir tvo
- 200 gr. Bonsan Teriyaki Jackfruit
- Kínverskar pönnukökur
- Ein gúrka, niðursneidd í strimla
- Einn vorlaukur, niðursneiddur í strimla
- Sesamfræ til að skreyta (valkvætt)
- Ferskt kóríander (valkvætt)
Aðferð:
- Hitaðu teriyaki Jackfruit á pönnu
- Hitaðu pönnukökurnar stuttlega í ofni
- Settu eina matskeið af jackfruit „öndinni“ á pönnuköku og þar á eftir gúrku og vorlauk.
- Stráðu sesamfræjum og fersku kóríander yfir til skreytinga.
- Rúllaðu pönnukökunni upp og njóttu!
Bonsan matvörurnar eru vegan og fást í verslunum NETTÓ, Heilsuhúsinu og í netverslun Heilsuhússins.
Heimild: www.bonsan.co.uk