Hormónakerfi bæði karla og kvenna er hægt að líkja við ósvífna dyraatið sem herjaði á íbúa Vesturbæjar fyrr í haust þar sem saklausir íbúar hlukku í kút við hávært ding og spark í útidyrahurðir. Til að útskýra betur þessa samlíkingu á dyraati og hormónum er mikilvægt að kynna sér hormónakerfi mannslíkamans.
Á breytingaskeiði bæði kvenna og karla gerist það sama og hjá íbúunum í Vesturbænum þar sem dyrabjöllunni var dinglað en enginn fyrir utan þegar heimilisfólk fór til dyra; enginn hormón kvikna því það vantaði sendinguna og til þess að hún skili sér. Því þarf að virkja sendiboðann og hvetja hann til dáða. En hvernig gerum við það? Svarið er einfalt: með góðri næringu og réttum lífstíl. Það er einnig hægt að hjálpa til með góðum bætiefnum og jurtum sem geta haft góð áhrif á þá kvilla sem eru að hrjá okkur á þessu tímabili.
Konur sem valið hafa að hafna hormónameðferð á breytingaskeiði hafa í staðinn sumar hverjar prófað inntöku á sérstökum blöndum bætiefna. Þessar jurtablöndur hafa sýnt sig bæta t.d. svefngæði, draga úr skapsveiflum, hitakófi og hafa jákvæð áhrif á heilaþokuna og minnisglöpin sem læðast gjarnan yfir okkur miðaldra læðurnar. Dæmi um jurtablöndur er t.d. Kvennablómi og jurtir sem styrkja hormónakerfi á breytingaskeiði eru t.d. hafrar (avena sativa), burnisrót, gingkgo biloba, lindiblóm og lakkrísrót. Ég mæli sérstaklega með jurtinni Ashwagandha. Hún er frábær til að jafna skapsveiflur. Einnig er gott að taka inn góðar fitusýrur eins og Omega 3 sem er í feitum fiski eða bætum inn góðum olíum eins og fiskiolíu.
Tökum ábyrgð á eigin heilsu og lífi
Margar konur eru næringarlega séð ekki upp á sitt besta þegar breytingaskeiðið skellur á en það getur hjálpað ótrúlega að vera vel nærður þegar kemur að því aldurskeiði. Með öll vítamín og bætiefni í toppi siglum við lygnari sjó í gegnum þetta mikilvæga lífskeið.
Ég mæli sérstaklega með þaratöflum á þessu æviskeiði. Skjaldkirtilinn reiðir sig á að fá nægilegt joð ef of lítið þá getur það valdið mörgum alvarlegum heilsufarsvandamálum. Skjaldkirtilinn sér um að halda jafnvægi á hormónum líkamans. Ef ekki nægilegt joð þá geta einkenni s.s. skapgerðabreyting, þyngdaraukning eða tap, þreyta, meltingavandamál og hormónaójafnvægis og ójafnvægið getur leitt einn kvillaðn að öðrum.
Sem næringarfræðingur mæli ég hiklaust með því að prófa allt sem hægt er til að hjálpa líkamanum í gegnum breytingaskeiðið sem getur vissulega verið krefjandi tímabil fyrir margar konur en líka tímabil breytinga og skemmtilegrar sjálfskoðunar og endurmats. Munum að öll skeið ævinnar hafa sinn sjarma og sín vandamál (halló, gelgjuskeið! Gæti verið skýring á dyraatinu) en vandamálin eru hér til að leysa þau. Ef við búum okkur vel undir þetta tímabil þá er engin hætt að við reitum af okkur hár í verstu skapsveiflunum eða allir séu fífl og asnar í kringum okkur. Ég segi ekki að við verðum á eintómu hamingjuskýi en það er aldrei að vita nema að þetta virki og þess virði að prófa að taka lífsstílinn í gegn og prófa góð bætiefni sem hjálpar okkur yfir þetta skeið. Njótum þess.
Karlmenn! Við skulum hafa eitt á hreinu. Dyrahrekkir viðgangast ekki bara í Vesturbænum frekar en að breytingaskeiðið nái eingöngu til okkar kvennanna.
Kynntu þér öll vítamínin frá Gula miðanum á www.gulimidinn.is
Ykkar,
Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur



