Guli miðinn kalk og magnesíum | betri svefn og vöðvaslökun

berglindgulur

kalkogmagn Magnesíum er frábær vara, sem er ávallt til á mínu heimili. Ég fann fljótlega fyrir jákvæðum einkennum af inntöku magnesíum, og hef tekið það daglega í langan tíma. Það róar taugakerfið, hefur vöðvaslakandi áhrif og lagar fótapirring, sem ég finn stundum fyrir á kvöldin og bætir svefngæði til muna. Ég sofna fyrr og sef dýpri svefni, sem leiðir til þess að ég er minna þreytt yfir daginn. Magnesíum hefur einnig jákvæð áhrif á tennurnar og ráðlagt er að auka inntöku þess sem góð forvörn gegn tannskemmdum og til að styrkja þær. Annað sem mig langar að benda á í tengslum við hið undraverða magnesíum er að það er mjög mikilvægt fyrir þá sem eru undir líkamlegu eða andlegu álagi af einhverju tagi.

„Ég get ekki lagt nægilega mikla áherslu á það hversu góð og mikilvæg þessi tvenna er.“

Varðandi kalk þá lærði ég það frá mömmu mjög snemma að passa vel upp á heilbrigði beina, en konur í ættinni hafa glímt við beinþynningu. Ég var því fljótlega mjög meðvituð um að sporna gegn henni og hef tekið kalk frá því ég var um tvítugt en beinþynning getur verið grafalvarlegt mál. Ég er ekki viss um að margir átti sig á því en eftir 25 ára aldur byrjar styrkur beina að dvína og þá er mikilvægt að bæta upp fyrir það með inntöku kalk+magnesíum.

Ég verð samt að viðurkenna, öðrum til varnar, að ég áttaði mig ekki á því fyrr en nýlega hversu mikilvægt það er að viðhalda jafnvægi á milli magnesíum og kalks í líkamanum því þau vinna náið saman. Magnesíum er eitt mikilvægasta steinefni líkamans en það eykur inntöku beina á kalki og ef það er ójafnvægi á magnesíum og kalsíum getur það haft skaðleg áhrif á líkamann. Það eru því ótvíræðir kostir að taka þessa dýrmætu tvennu í einni töflu.

Berglind Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur, ástríðukokkur og athafnakona. Hún hefur frá árinu 2012 haldi úti vefsíðunni Gulur, rauður, grænn og salt sem er eitt vinsælasta matarblogg landsins og gefið út þrjár matreiðslubækur. Berglind er einn af þáttastjórnendum Dagmála á mbl.is ásamt því að taka að sér ýmis verkefni sem tengjast uppskriftasíðunni.

Nánari upplýsingar á www.gulimidinn.is