Sigurjón Ernir er í dag í hópi öflugustu utanvegahlaupara landsins og rekur í dag fyrirtækið UltraForm ehf., sem er með tvær hóptímastöðvar. Önnur stöðin er staðsett í Grafarholti og hin á Akranesi.
Sigurjón leggur áherslu á fjölbreytta þjálfun þrátt fyrir að keppa hvað mest í hlaupum. Hann segist alltaf hafa lagt áherslu á reglulega styrktarþjálfun þar sem unnið er með þætti á borð við: jafnvægi, samhæfingu, snerpu og liðleikavinnu í æfingum.
Við reglulegar æfingar jafnt sem í keppnum er mikilvægt að líkaminn fái þá orku sem hann þarf á að halda kringum átökin. Í dag er vinsælt að grípa í orku- eða próteinstykki kringum æfingar en það gleymist stundum að útskýra muninn á próteinstykki annars vegar og orkustykki hins vegar. Við ætlum því hér að neðan að skoða muninn á þessu tvennu.
Orkustykki henta afar vel fyrir, yfir eða mjög fljótlega eftir æfingar þar sem þau eru hvað ríkust af kolvetnum og líkaminn þarf kolvetnin á tankinn kringum átök. Clif Bar er dæmi um gott orkustykki, það inniheldur mikið magn af kolvetnum en minna magn af próteinum og fitu. Clif Bar inniheldur einnig magnesíum og kalsíum jafnt sem önnur vitamín, sem koma sér vel fyrir líkamann kringum æfingar. Próteinstykki eru, líkt og nafnið gefur til kynna, með hærra hlutfall af próteinum og einnig stundum fitu en talsvert minna magn af kolvetnum. Próteinstykki henta því talsvert betur eftir æfingar eða sem máltíð/millimál yfir daginn. Þau, líkt og orkustykki, innihalda oft eitthvað af steinefnum og vítamínum.
Til að gera langa sögu stutta eyðum við orku við æfingar og þá hittir orkustykkið vel í mark. En eftir og á milli æfinga á sér stað líkamleg uppbygging og þar spila prótein stærri þátt.




