Tyggðu þig í átt að bættri heilsu | tyggðu þér betri heilsu.

tyggjo

Flestir íslendingar eiga það sameiginlegt að hafa stungið upp í sig tyggjógúmmí á einhverjum tímapunkti í þeirra lífi. Það er jafnvel mögulegt að þú kæri lesandi sért að tyggja eitt í þessum „upplesnu“ orðum.

Eins algeng og tyggjóneysla er í okkar samfélagi hefur almennt lítið fyrir henni þegar kemur að heilsufarslegum hugleiðingum.

Ættum við ekki að vera velta því fyrir okkur hvort heilsunni okkar sé greiði gerður með langvarandi tyggjó neyslu? Ferskur andadráttur er varla þess virði ef heilsan okkar hangir á línunni, eða hvað…?

Lukkulega þarftu ekki miklar áhyggjur að hafa. Þú getur notið vel lyktandi munnvika, fallegrar kjálkalínu og góðrar heilsu samtímis með tyggjóneyslunni. Þegar í rannsóknir er gáð má sjá margt benda til þess að tyggjóneysla geti haft ýmis jákvæð áhrif á líkamlega og jafnvel andlega heilsu okkar.

pur Tannheilsa
Tannheilsan er hér fremst í flokki. Tyggjóneysla eykur munnvatnsframleiðslu sem hjálpar við að hreinsa munninn, halda bakteríuflóru í jafnvægi og skola burt sýru sem ýtir undir tannskemmdir. Að fá sér tyggjó í kjölfar máltíða gæti því verið skilvirk leið til að viðhalda góðri tannheilsu.

„Á meðan margar tegundir af tyggjói innihalda umdeild gervisætuefni eins og aspartam og súkralósa, þá eru aðrar tyggjó tegundir eins og Pür og Spry sem innihalda einungis náttúrulegri innihaldsefni.“

Náttúrulegu sætuefnin í þessum tegundum, eins og xylitol, hafa ítrekað sannað sig með tannheilsueflandi eiginleikum sínum. Xylitol gefur tyggjóinu bæði sætt bragð og dregur samtímis úr sýrumyndandi bakteríum sem eyða upp glerung tannanna og dregur þannig úr myndun tannskemmda.

Einbeiting og heilastarfsemi
Ótrúlegt en satt þá hafa rannsóknir ítrekað sýnt fram á aukna einbeitingu og árvekni í kjölfar þess að tyggja tyggjó fyrir krefjandi hugarþrautir og verkefni.

Að tyggja virðist auka blóðflæði til heilans og þá sérstaklega til ákveðinna svæða í heilanum sem gæti verið undirliggjandi verkunin.

Kvíði og streita
Ekki endar það á einbeitingunni heldur gæti tyggjóneyslan þín einnig dregið úr kvíða og steitu. Verkunin sem liggur að baki er ekki nægilega skýr en niðurstöður fjölda rannsókna hafa bent til þess að tyggjóneysla geti haft streitu- og kvíðalosandi áhrif.
Hungur og matarlyst

Tyggjóneyslan gæti einnig haft jákvæð áhrif á holdafar þitt, en nokkrar rannsóknir gegnum árin hafa fundið að regluleg tyggjóneysla virðist draga úr matarlyst og minnka snarlþörf.

sprybla Hvaða tyggjó er best?
Tyggjó er ekki allt af sama bergi brotið og því skiptir máli að vanda valið. Í mörgum tyggjótegundum er að finna ýmis efni, mörg hver hugsanlega heilsunni okkar til óbóta. Bæði innihalda tyggjógúmmí oft umdeild gervisætuefni og jafnvel plastefni en á sama tíma vantar þau efni sem geta stuðlað að bættri tannheilsu. Mörg innihalda einnig sætuefnið sorbitol, en rannsóknir hafa sýnt að sorbitol getur nært ákveðnar bakteríur í munninum sem ýta undir tannskemmdir.

Tyggjó eins og Spry og Pür leggja mikla áherslu á að velja náttúruleg innihaldsefni. Þar finnur þú engin gervisætuefni og ekkert sorbitol heldur einungis xylitol og erythritol. Náttúruleg sykur alkóhól sem hafa sýnt góðan árangur í að sporna gegn tannskemmdum og bakteríuójafnvægi.

Ef það eru einhverjar vörur sem ætti að vanda valið á, þá eru það vörur maður neytir daglega eins og tyggjó.

Ekki tyggja frá þér heilsuna. Veldu gæðatyggjó sem styðja við þína heilsu.

Þú færð Spry tyggjóin í fimm bragðtegundum í völdum stórmörkuðum, Apótekarnum, Lyfjavali, verslunum og netverslun Heilsuhússins og í verslunum og netverslun Lyfju.

Mynd: Andra C Taylor Jr on Unsplash