Styrkjum ónæmiskerfið með Gula miðanum

rakelónæmi
Ónæmiskerfi mannsins ver líkamann fyrir sýkingum og sjúkdómum af ýmsu tagi. Það er samansafn mismunandi líffræðilegra ferla sem bera kennsl á og bregðast við sjúkdómsvaldandi vírusum, örverum og aðskotahlutum sem eru ekki partur af heilbrigðum vefjum líkamans.

Í raun má skipta ónæmiskerfinu upp í tvennt. Annars vegar býr líkami okkar yfir meðfæddu ónæmiskerfi (ósérhæft), sem ber m.a. með sér erfðaefni foreldra okkar og gefur t.a.m. til kynna meiri eða minni áhættu að við þróum með okkur ákveðna sjúkdóma. En við ráðum víst litlu um þau gen sem við erfum. Hins vegar er um áunnið ónæmiskerfi líkamans (sérhæft) að ræða, sem við höfum þeim mun meiri stjórn á. Við getum mögulega eflt það eða veikt með lífsstíl okkar, fæðuvali, hreyfingu o.s.frv. Líkami okkar býr yfir ákveðnum þörfum til að uppfylla þær mismunandi kröfur sem settar eru á hann af mismunandi kerfum líkamans. T.d. þarf taugakerfi líkamans hin mismunandi B-vítamín í misjöfnu magni til að starfsemi og áhrif þess á önnur kerfi líkamans séu í jafnvægi. Líkaminn getur sjálfur fullnægt hinum ýmsu þörfum sínum en einnig þurfum við að fá þeim fullnægt úr umhverfinu, t.a.m. úr fæðu og með hreyfingu.

Á síðustu árum hefur rannsóknum mikið fleygt fram á sviði næringarfræðinnar og áhrif hinna ýmsu næringarefna á hin ýmsu kerfi mannslíkamans og heilsu mannsins.

Guli miðinn c-1000

C- vítamín er öflugt andoxunarefni sem eflir ónæmisvarnir með því að styrkja ýmsa starfsemi sem tilheyrir bæði meðfæddu og áunnu ónæmiskerfi. Það hefur verndandi áhrif á hvítar blóðfrumur og er nauðsynlegt öflugu ónæmisviðbragði. C-vítamín er lífsnauðsynlegt líkamanum sem getur ekki framleitt það sjálfur. Um er að ræða vatnsleysanlegt vítamín sem fyrirfinnst í miklu magni í ávöxtum og grænmeti, t.a.m. í rauðri papriku, appelsínum, jarðarberjum, brokkolí og grænkáli. Upptaka líkamans á C-vítamíni úr bætiefnum virðist vera góð og ætti í það minnsta að styrkja varnir líkamans þegar inntaka á C-vítamíni úr fæðu er tæp eða ekki til staðar. „Sólskinsvítamínið“ D- vítamín er fituleysanlegt vítamín og finnst í tveimur formum, D2 og D3. D2 kemur frá plöntuafurðum eins ogGuli miðinn D vítamín 120 sveppum og fæðu með viðbættu D- vítamíni eins og mjólk og morgunkorni. D3 kemur aðallega frá dýraafurðum eins og fiskiolíu, feitum fiski, lifur og eggjarauðu. Fyrir utan það að viðhalda eðlilegu magni af kalki og fosfati í blóði, stuðlar það að upptöku á kalki úr þörmum og styður við eðlilega steinefnaþéttni í beinum og tönnum. Þá virðist D-vítamín einnig vera nauðsynlegt eðlilegri frumuþróun og styðja við ónæmiskerfið. Faraldsfræðilegar rannsóknir gefa til kynna að D-vítamín spili stórt hlutverk í sjálfsónæmissjúkdómum, sýkingum, krabbameinum o.s.frv. Þar sem inntaka í gegnum fæðu og geislar sólar virðast ekki nægja líkamanum til að uppfylla ráðlagðan dagskammt þá er skynsamlegt að taka reglulega inn D-vítamín í gegnum bætiefni.

Guli miðinn ólífulauf

Ólífulauf eru áhugavert bætiefni hvað eflingu ónæmiskerfisins varðar en þau hafa verið minna rannsökuð. Þau innihalda meira magn fjölfenóla (andoxunarefna) en finnst t.d. í jómfrúarólífuolíu og ýmsum ávöxtum. Nokkuð margar rannsóknir styðja við þær niðurstöður að ólífulauf minnki bólgur og búi yfir andoxunareiginleikum og þar með styðji þau við öflugt ónæmiskerfi. Rannsóknir hafa sýnt fram á að inntaka á ólífulaufum fjölgi ákveðnum hvítum blóðfrumum í líkamanum sem talið er efla ónæmisviðbragðið og ýti undir æxlishemjandi virkni.

Jafnvægi í næringu er mikilvægt í daglegu lífi fólks. Að fólk fái nægan svefn, viðhaldi daglegri hreyfingu, reglulegri streitustjórnun og efli félagslega heilsu, sem ætti að vera í forgangi til að upplifa vellíðan. Inntaka bætiefna kemur ekki í staðinn fyrir að hlúa að heilbrigðum lífsstíl daglega, þó svo að þau virðist geta eflt heilsu okkar með ýmsum hætti, en það veltur oft á einstaklingsmiðuðum þörfum okkar.

Guli Miðinn framleiðir bætiefni sérstaklega með þarfir fólks á norðlægum slóðum í huga. Vörulína Gula Miðans er framleidd án allra óæskilegra aukaefna eins og til dæmis rotvarnarefna, uppfylliefna eða bragðefna. Vörurnar eru í brúnum glerglösum sem varðveita gæði og verja innihaldið fyrir sólarljósi. Umhverfið spilar stóran þátt í vali Gula Miðans á umbúðunum en þær eru endurvinnanlegar. Vörur Gula Miðans eru GMP-vottaðar en GMP stendur fyrir góða framleiðsluhætti og er ákveðinn gæðastimpill fyrir vörumerki í matvælaiðnaði.

Á gulimidinn.is er einnig er að finna fræðslugreinar um vítamín Gula miðans og upplýsingar um sölustaði Gula miðans um land allt.

Rakel er með bakgrunn í næringarfræði, jákvæðri sálfræði og hreyfingu. Hún rekur Rakel Healthy Living í Lúxemborg þar sem hún starfar við heildræna heilsuráðgjöf og kennir Pilates. Hún heldur einnig úti Pilatesstúdíói á netinu undir rakelhealthyliving.com.