Orka frá Gula miðanum

Viðir Þór Þrastarson, íþrótta-og heilsufræðingur

Vítamín geta komið sér vel ef okkur líkamanum vantar næringarefni m.a. fyrir efnaskipti og efnahvörf. Flest þeirra getur líkaminn ekki framleitt, heldur fást þau úr fæðunni. Líkaminn myndar einungis D- vítamín sjálfur en það ferli fer fram í húð með sólarljósi og síðan K2 vítamín sem myndað er af örverum í þörmum. Þó er ráðlagt að við neytum þeirra í fæðubótaformi, sér í lagi D-vítamínið þar sem okkur vantar meiri sól hér á norðurhjara til að mæta þörfinni.

Mikilvægt er að borða sem mest af hreinni og sem minnst af unninni fæðu. Við hvers kyns matarvinnslu skerðast oft næringarefnin svo mikilvægt er að reyna að borða sem mest af kjarnafæði (Whole Foods).

B12sugutöflur
B12-1000mcg sugutöflur

Öll vítamín eru afar mikilvæg og sér í lagi eitt sem mig langar að nefna en það er B12 (Cobalamin). Þetta vítamín er framleitt af bakteríum í jarðveginum en þar sem allt er úðað nú til dags og síðar djúphreinsað er orðið talsvert minna af því í nútímafæði. Þess fyrir utan gengur mörgum illa að frásoga það í smáþörmum, sem getur leitt til skorts í líkamanum. Þess vegna getur verið mikilvægt og hreinlega nauðsynlegt fyrir marga að taka B12 inn í fæðubótaformi.

Eftirtalin einkenni geta gefið vísbendingu um B12 vítamínskort:

  • Fölur húðlitur og jafnvel smá gula í húð og augum.
  • Þreyta og slappleiki.
  • Stingir í höndum og fótum (alvarlegur skortur).
  • Óstöðugleiki við gang.
  • Munnangur
  • Andþyngsli og svimi.
  • Sjóntruflanir
  • Depurð og minnisleysi.

Fyrstu augljósu einkennin eru yfirleitt þreyta. Fólk sem hefur skort vítamínið og fengið það í fæðubótaformi eða sprautað því í vöðva, eins og stundum er gert, hefur fundið fyrir gríðarlegum mun, þ.e. mun meiri orku. Þess vegna kalla ég B12 orkuvítamínið.
B12 frá Gula miðanum er í uppáhaldi hjá mér. Þetta eru bragðgóðar sugutöflur án sykurs, sem veita 1000 mcg, sem er góður skammtur til að vinna gegn þreytu og mæði. Fyrir utan að slá á skortseinkennin er B12 talið nauðsynlegt fyrir heilbrigði tauga og húðar.
Inntaka á B12 hefur mikið verið rannsökuð í tengslum við ýmsa heila- og taugasjúkdóma og talið er að vítamínið geti veitt góða vernd hvað það varðar.
Auk þess getur inntaka á B12 almennt stuðlað að meiri orku og vellíðan, eðlilegri blóðmyndun, sterku hjarta og æðakerfi, bættu andlegu jafnvægi, betri svefni og bætt meltingu.

Með því að sjúga töflurnar fer frásog fram í gegnum slímhúð og þaðan inn í kerfið og upptakan verður því oft betri en í gegnum þarmana.
Sem fyrr er mikilvægt að borða alvöru mat, hreyfa sig vel og reglulega, vera þakklát og passa upp á að fá öll þau vítamín sem við þurfum á að halda, sér í lagi B12 og þar mæli ég eindregið með Gula miðanum.

Á gulimidinn.is er einnig er að finna fræðslugreinar um vítamín Gula miðans og upplýsingar um sölustaði Gula miðans um land allt.

Heilsukveðja,
Víðir Þór Þrastarson, íþrótta- og heilsufræðingur