Floravital | Náttúruleg, mild veganlausn við járnskorti

Floradix
Höfundur: Sunna Ben

Í ljósi þess hversu algengur járnskortur er í raun tel ég mig alltaf heppna að hafa ekki upplifað hann fyrr en eftir barnsburð. En eftir mikil veikindi á meðgöngu varð ég afar lág í járni og þurfti að bregðast hratt við eftir að sonur minn kom í heiminn. Ég var orðin ansi þreytt á þessu mausi og óþægindum þegar ég mundi eftir Salus-vörunum, sem ég hafði prófað við öðrum kvillum og dreif mig að kaupa járn frá þeim, en ég valdi Floravital sem er veganútgáfan af Floradix. Mig grunaði nefnilega að Floravital, sem er náttúrulegt, milt og í fljótandi formi, gæti hentað mér og minni viðkvæmu meltingu betur en þurru og sterku töflurnar sem ég hafði verið að bryðja, og viti menn, það reyndist rétt! Magaverkirnir heyrðu sögunni til svo gott sem um leið og ég skipti yfir og það varð minnsta mál að vinna á þessum járnskorti, sem heyrir nú sögunni til.

Ég mæli því hiklaust með Floravital, fyrir alla þá sem vilja gott veganjárn sem ekki ertir meltinguna, athugið líka að flest járn er einmitt ekki vegan.
Eins mæli ég með því að skoða hinar vörurnar frá Salus, vandaðar vítamínblöndur í fljótandi formi og jurtamixtúrur, sem hjálpa við ýmsa kvilla. Þessar vörur eru mildar í maga og henta okkur sem viljum ekki vera að bryðja töflur allan daginn prýðilega.

Eins og ég minntist á þá er járnskortur ekki sjaldgæfur og ef þig grunar að þú gætir verið með járnskort þá mæli ég með því að fara í blóðprufu á heilsugæslunni þinni, það er afgreitt hratt og þú ættir að fá niðurstöður innan nokkurra daga. Það kom mér persónulega á óvart hversu lítið mál þetta er þegar ég fór fyrst. Ég hef farið nokkrum sinnum undanfarin ár í blóðprufur til þess að fylgjast með járni, B12 o.fl., sem æskilegt er að vakta á veganmataræði.

Einkenni járnskorts geta verið hvimleið og dregið úr getu okkar til þess að áorka því sem okkur langar til, svo ég hvet fólk endilega til þess að vera á varðbergi gegn þekktum einkennum, fylgjast með blóðgildum sínum ef það hefur áhyggjur og hlúa vel að sér ef það upplifir járnskort. Það er nóg til af lausnum og sumar hverjar eru náttúrulegar, mildar og þægilegar, til dæmis Floravital.

  • Floravital fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og í netverslun og verslunum Heilsuhússins, Lyfjavers, Nettó. Heimkaupa og Lyfju.