Þarmaflóran er mikilvæg heilsunni

optibaFED
Gudrunveigaoptibac
Höfundur: Guðrún Veiga

Ég hef notað góðgerlana frá Optibac í meira en ár núna. Ég er ekki ein á Optibac-skútunni, heldur læt ég alla fjölskyldumeðlimi taka inn góðgerlana frá þeim. Litla stýrið mitt hefur fengið góðgerla síðan hún var ungabarn en hún var mikið kveisubarn og seinna eyrnabarn sem fékk hvern sýklalyfjaskammtinn á fætur öðrum og þess vegna mjög mikilvægt að passa upp á þarmaflóruna hennar. Frá Optibac er bæði hægt að fá góðgerla í dropa- og duftformi sem gefa má frá fæðingu. Dóttir mín er fjögurra ára í dag og tekur núna inn Optibac gúmmí fyrir börn eldri en þriggja ára – hér er ekkert duft sem þarf að blanda og ekkert mál að koma því ofan í hana af því gúmmíið bragðast eins og sælgæti, þrátt fyrir að vera laust við viðbættan sykur og sætuefni. Rannsóknir hafa sýnt að inntaka góðgerlagetur dregið úr líkum á öndunarfærasýkingum hjá börnum og auk þess stytt þann tíma sem tekur að komast yfir veikindi. Eins hafa rannsóknir og reynsla sýnt að inntaka góðgerla geti dregið úr einkennum hjá börnum sem glíma við meltingarvandamál á borð við hægðartregðu eða bakflæði.

Eins og flestir vita er þarmaflóran auðvitað gríðarlega mikilvæg heilsu okkar, bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Að halda þarmaflórunni í jafnvægi er grundvöllur góðrar heilsu en jafnvægi hennar getur svo auðveldlega raskast vegna veikinda, sýklalyfjainntöku, streitu, kvíða og allskonar lífsstílstengdra þátta. Auðvitað viljum við líka halda meltingunni upp á tíu og þar hjálpa góðgerlarnir til. Það nennir enginn veseni á borð við uppþembu, vindgang eða hægðartregðu.

Eldri fjölskyldumeðlimir, við hjónin og unglingurinn, tökum daglega Optibac Everyday. Sjálf hef ég einnig annað veifið tekið inn Optibac For Women og hef af gríðarlega góða reynslu af þeirri tegund góðgerla frá Optibac og mæli með við allar konur sem nenna að hlusta á mig. En þessi formúla frá Optibac inniheldur einu gerlana sem sannað hefur verið í klínískum rannsóknum að komist lifandi í gegnum meltinguna að kynfærasvæði. Þetta er nauðsynleg vara fyrir konur sem eru gjarnar á að fá sveppa- eða þvagfærasýkingar.

Everyday

  • Optibac fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og í netverslun og verslunum Heilsuhússins, Lyfjavers, Nettó. Heimkaupa og Lyfju.