Orðið yoga er komið úr fornmálinum sanskrít og merkir „eining“. Eining líkama, hugar og anda. Eining alls sem er. Jóga, sem er heitið á íslensku, er leiðarkerfi til þess að átta sig á þeim djúpa sannleik sem að baki tilverunnar býr. Mikilvægur hluti hinnar reglulegu ástundunar er hugleiðsla.
Að taka sér stund til að setjast niður, tengjast andardrættinum og ná djúpri hugarkyrrð er ótrúlega mögnuð iðkun. Frá því ég kynntist jóga hefur líf mitt breyst til hins betra. Mér þykir best að stunda hugleiðslu um miðjan morguninn þegar hugurinn er nýlega vaknaður en þó ekki kominn á fullt skrið. Þá er upplagt að hella upp á notalegan tebolla. Uppáhaldsteið mitt er „Chai Rooibos“ því það minnir mig svo á dvölina á Indlandi þar sem ég lagði stund á framhaldsnám í jógakennslufræðum. Þar fékk ég heimalagað Chai-te með sömu hráefnum, kardimommum, kanil og negul eftir morgunhugleiðsluna og drakk á meðan ég skrifaði niður atriði í þakkardagbókina. Ég leitaði lengi að slíku tei eftir að ég kom heim. Mér finnst Chai Rooibos Yogi te ná sama bragðinu og ilmurinn er unaðslegur. Önnur jógate, sem eru einnig í uppáhaldi hjá mér, eru Throat Comfort, sérstaklega á þessum árstíma – á haustin. Þá eru einnig te frá Yogi Tea góð, sem ég nota til að hressa mig við. Ég er viðkvæmur fyrir of miklu kaffi þannig að ég held því í lágmarki. Orkan og einbeitingin sem maður fær af Perfect Energy og Green Tea veita mér vellíðan út daginn án þess að ég finni fyrir óþægindum. Uppáhaldið mitt eftir grænan tebolla er góður göngutúr að morgni í köldu en stilltu veðri, að fylgjast með borginni vakna. Á þessum tíma fæ ég gjarnan hugmyndir sem ég skrifa niður þegar ég kem heim úr göngutúrnum.
Annað sem mig langar að nefna, sem að mínu mati er fallegt við Yogi Tea, fyrir utan vönduð hráefni og framleiðslu, eru litlu gullmolarnir og viskukornin á miðunum, sem fylgja hverjum tepoka. Það gerir tebollann að meiri upplifun og minna mann á mikilvæga hluti sem tengjast því að vera betri manneskja. Ég safnaði þessum miðum á tímabili. Ein jólin ákvað ég að gefa fjölskyldu minni myndir í krúttlegum römmum í jólagjöf. Þá fann ég viðeigandi setningu á miða fyrir hverja mynd og límdi á. Í hvert sinn sem ég fer til mömmu og pabbi sé ég þessar myndir í eldhúsinu með tilvitnunum frá Yogi Tea:
- Við mynd af mér og Pabba þar sem við erum í vinnugallanum að endurbæta húsið að utan stendur: – „Together we can do what we never can do alone.“
- Við mynd af mér og systkinum mínum á fallegri stundu eftir leikhússýningu stendur: – „Every child is a hope for the world.“ Og „Love, compassion and kindness are the anchors of life“.
- Við mynd af brosandi ömmu minni heitinni stendur: „Every smile is a direct achievement.“ En hún hafði einstaklega gott geðslag og var afskaplega jákvæð manneskja.
Tómas Oddur Eiríksson er með bakgrunn úr leiklist, dansi og söng og er menntaður mannvistarlandfræðingur. Tómas hefur starfað sem jógakennari í tíu ár og er einn eigenda Yoga Shala Reykjavík þar sem hann kennir reglulega opna tíma, einkatíma, thai-nuddtíma, námskeið, viðburði og kennaranám.
Yoga tein fást í helstu matvöruverslunum, netverslun Nettó, Krónu appinu og verslunum og netverslun Heilsuhússins.




