Stökkir blómkálsbitar í raspi

Bragðast eins og argasti skyndibiti en svo miklu hollara! Blómkál er kannski fjölhæfasta grænmetið og smakkast einstaklega vel í þessari stökku og bragðgóðu útgáfu. Snilldar meðlæti eða fingramatur í veisluna eða matarboðið.

Innihald:

  • 1 blómkálshöfuð
  • 60 gr hveiti
  • 125 ml ósætt jurtamjólk
  • 1/4 tsk sjávarsalt
  • 1/2 tsk malaður svartur pipar
  • 1/2 tsk hvítlauksduft
  • 1/4 tsk chilli flögur (1/2 tsk ef þú vilt sterkt, slepptu þeim alveg ef þú vilt ekkert sterkt)
  • 120 gr brauðraspur

Aðferð:

  1. Hitaðu ofninn að 180°C
  2. Skerðu blómkálið í munnbita
  3. Blandaðu öllu nema raspi vel saman í skál
  4. Settu raspinn í aðra skál
  5. Veltu blómkálsbitunum upp úr deiginu og svo upp úr raspinum
  6. Raðaðu á bökunarplötu og bakaðu svo í 22 mínútur
  7. Leyfðu þeim að kólna aðeins áður en þú berð fram með sósunni

Sósan:

  • 4 msk hlynsíróp
  • 2 msk tamari sósa
  • 1/2 tsk sesamfræ
  • 1/4 tsk malaður svartur pipar
  • 3/4 tsk engiferduft
  • Saxaður vorlaukur og sesamfræ til skrauts

Aðferð:

  1. Allt hrært saman í skál

 

Uppskrift fengin af biona.co.uk