Þessar ómótstæðilega stökku súkkulaðibitakökur koma úr smiðju Önnu Guðnýjar hjá Heilsa og Vellíðan. Þær eru allt sem smákökur eiga að vera án þess að stofna heilsunni í hættu.
Svo eru þær líka vegan, sniðugt ef þú ert að veganvæða líf þitt.
Innihald:
- 2 msk möluð chiafræ + 4 msk vatn
- 6 dl haframjöl
- 2 dl möndlumjöl
- 1,5 dl kókospálmasykur
- 1 dl kókosolía
- 2 dl möndlusmjör
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk eplaedik
- 150 ml möndlumjólk
- 1/4 tsk vanilluduft
- 1/2 tsk gróft salt
- 40 gr ristaðar kasjúhnetur
- 100 gr 70% saxað vegan súkkulaði
Aðferð:
- Malaðu chiafræin í kaffikvörn og pískaðu þau saman við vatnið. Settu til hliðar.
- Settu haframjöl, möndlumjöl og kókospálmasykur í matvinnsluvél og láttu hana vinna þar til haframjölið verður að fíngerðu mjöli.
- Bættu nú öllu nema súkkulaðinu útí, líka chiagelinu og láttu vélina vinna þetta vel saman.
- Ef deigið hefur hitnað skaltu kæla það aðeins áður en þú bætir söxuðu súkkulaðinu saman við.
- Mótaðu svo smákökur og raðaðu þeim á bökunarplötu – gott að móta kúlur og fletja þær út með lófanum
- Bakaðu nú í 180°C heitum ofni með blæstri í 15-20 mínútur. Taktu þær svo út og leyfðu þeim að kólna alveg áður en þú hreyfir við þeim.



