Slakandi trufflur sem minna á kökudeig – vegan og enginn viðbættur sykur!

Þessar eru ofur einfaldar en hrikalega góðar.

Svona orkukúlur eru eitthvað það besta sem ég veit, bara ein eða tvær eru nóg til friða sykurpúkann. Samt er enginn viðbættur sykur og fullt af fitu og prótíni til að halda blóðsykrinum í skefjum.

Hérna bætti ég út í deigið Avena Sativa & Tart cherry dufti frá Terranova. Það er þekkt fyrir slakandi áhrif en avena sativa er unnið úr höfrum og er talið hafa róandi áhrif á taugakerfið. Tart cherry eða súr kirsuber innihalda síðan náttúrulegt melatónín sem getur hjálpað okkur að sofa betur. Þessar kúlur eru því frábærar sem kvöldnarsl í staðinn fyrir að detta í snakkpoka eða súkkulaði. Bara 2stk innihalda ráðlagðan skammt af duftinu.

Auðvitað er hægt að sleppa duftinu ef þú vilt ekki hafa það með. Svo er hægt að bæta við kakódufti, nibbum eða gojiberjum ef vill.

Innihald:

  • 250gr döðlur (lagðar í bleyti ef þær eru harðar)
  • 100gr kasjúsmjör (hægt að nota möndlusmjör eða hnetusmjör í staðinn)
  • 75gr kókosmjöl frá Sólgæti
  • 1/2 tsk vanilluduft frá Sonnentor
  • 4 tsk Terranova Avena sativa & tart cherry duft
  • Smá klípa af salti

Aðferð:

  • Settu allt í matvinnsluvél og láttu hana vinna þangað til allt hefur blandast vel og klístrað deig myndast
  • Láttu harðna í kæli í 30mín
  • Mótaðu kúlur með höndunum
  • Geymdu í kæli eða frysti
  • Gerir um 30stk

Njótið!