Kjúklingabauna fusilli frá Profusion er frábær kostur fyrir þá sem vilja minnka við sig kolvetni eða þola illa hveiti og aðrar kornvörur en vilja gæða sér á góðu pasta.
Þessi réttur er ótrúlega einfaldur og góður og auðvitað mjög næringarríkur.
Innihald:
- 2 rauðar paprikur, skornar í strimla
- 1 stórt eggaldin, skorið í bita
- 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 2 hvítlauksgeirar í hýðinu
- Ólífuolía
- Svartur pipar
- 8 kirsuberjatómatar , skornir til helminga
- 2 handfyllir fersk basillauf, söxuð gróflega
- 200 gr kjúklingabauna fusilli frá Profusion
- 2 msk pestó (má sleppa)
Aðferð:
- Stillið ofninn á 180°C með blæstri
- Raðið papriku, eggaldin, rauðlauk og hvítlauk á ofnplötu
- Hellið smá ólífuolíu yfir og stráið salti og pipar jafnt yfir
- Bakið í heitum ofninum í 20 mínútur
- Hrærið þá aðeins í grænmetinu, bætið tómötunum á plötuna og bakið í 20 mínútur í viðbót
- Eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, sigtið svo og setjið það aftur í pottinn
- Hellið smá ólífuolíu yfir pastað, bætið pestó saman við og hrærið vel saman
- Þegar grænmetið er tilbúið; takið hýðið af hvítlauknum og stappið hann í skál með smá ólífuolíu og hrærið svo saman við grænmetið
- Blandið nú pasta og grænmeti saman, stráið basil yfir og berið fram