Falafel bollur

Falafel bollur fyrir fjóra.
1 bolli (250g) kjúklingabaunir – Sólgæti
1 laukur
1 tsk turmeric (við mælum með lífrænum Sonnentor kryddum)
1 tsk paprikuduft
1/2 tsk kardimommur
1/2 tsk múskat
1/2 tsk kanill
2 stk hvítlauksrif
1/8 bolli steinselja
1 tsk salt
1/2 tsk pipar
1 tsk cumin
1 tsk coriander
1 tsk matarsódi
1/8 bolli vatn
1 dl olía
Leggið kjúklingabaunirnar í bleyti yfir nótt. Hitið ofninn í 200gráður. Skolið baunirnar vel og látið leka af i sigti. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél í 1-2 mín, skafið niður hliðarnar á milli. Mótið kúlur með ískúluskeið og þjappið þeim vel saman, raðið kúlunum á bakka. Hitið 1dl af olíu á pönnu og steikið buffin í 1/2-1 mín á hvorri hlið. Setjið að lokum í eldfast mót og inn í ofn í uþb 10 mín. Njótið!

Hráefnið finnur þú í meðal annars í Heilsuhúsinu, Fjarðarkaup, Blómaval, Krónunni og Nettó.