Vítamínin frá Solaray eru uppfull af hreinni orku náttúrunnar og sú orka skilar sér í bættri heilsu, meiri orku og vellíðan. Það veit Sigríður Stefánsdóttir sem sannarlega finnur góð áhrif Solaray.
„Ég hef starfað með börnum í langan tíma og mér þykir starf mitt ómetanlegt. Ég þarf að hafa orku og úthald fyrir verkefni dagsins og finn svo sannarlega mun þegar ég tek inn vítamín frá Solaray. Mér finnst ég orkumeiri og betur vakandi á daginn og sef betur á nóttinni. Ég hef verið með hárlos í nokkurn tíma en finn gífurlega mikinn mun á hárinu mínu þegar ég tek inn Once daily for women vítamín frá Solaray. Meltingin mín er betri þökk sé góðgerlum frá Solaray sem hafa góð áhrif á magaflóruna. Magaflóran hefur svo mikið að segja fyrir almenna vellíðan og einnig hafa góðgerlar góð áhrif á ónæmiskerfið okkar.“ segir Sigríður.
Framleiðendur Solaray eru frumkvöðlar í blöndun jurta. Solaray vörurnar komu fyrst á markað fyrir 40 árum og hefur áherslan frá upphafi verið að framleiða bætiefni úr hágæða jurtum eftir ströngustu gæðareglum. Bætiefnin hafa frá upphafi verið framleidd og seld í sérstökum grænmetishylkjum sem bjóða upp á betri nýtingu á virkum efnum jurtanna.
Solaray bætiefnin koma í hylkjum eða perlum og eru flestar vörurnar án glútens, gers, sykurs og mjólkur.
Solaray vörurnar eru allar grænprófaðar (green screened), en þær merkingar upplýsa viðskiptavini um gæðaprófanir á virkni jurtanna og því hvort vörurnar séu „cruelty free“, vegan og/eða framleiddar á umhverfisvænan máta.
Solaray Once Daily Woman er alhliða fjölvítamín fyrir konur og inniheldur öll helsu öll helstu vítamín og steinefni. Góð form Hentar sérlega vel konum sem þurfa að huga að járnstöðu. 800mcg af fólínsýru sem er nægilegt magn fyrir þær sem huga að barneignum. einnig MSM og amínósýrur fyrir hár, húð og neglur.
Solaray Calcium, Magnesium og Zink er dásamleg steinefnablanda. Kalk, magnesíum og zink í góðum hlutföllum, auðnýtanlegt og þægilegt í inntöku. Gott að taka fyrir svefninn. Hentar sérstaklega vel eldri einstaklingum. Algengt er að fólk skorti þessi mikilvægu efni, sem getur komið niður á beinþéttni, vöðvavirkni og ástandi taugakerfis.
Solray Multidophilus góðgerlar geta bætt melingu. Inniheldur Bacilllus coagulans góðgerla og mjólkurlausir meltingargerla (Asídófílus). Blanda sem hentar öllum vel en þó sérstaklega þeim sem þjást af mjólkurofnæmi. Geta verið nauðsynlegir fyrir eðlilega meltingu og vellíðan. Geta unnið gegn uppþembu, krömpum, verkjum, harðlífi og niðurgangi. Henta börnum vel.
Solaray fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu, Fjarðakaup, Lyf og Heilsu, Heilsuveri, og öðrum völdum apótekum. Solaray fæst einnig í netverslun Lyfju og Heilsuhússins.