Nýtt frá Solaray – Fjölvítamín fyrir konur

Gott fjölvítamín getur verið góður stuðningur við daglegt mataræði, sérstaklega ef þú borðar ekki nægilega fjölbreytt fæði.

Eins konar baktrygging til að sjá til þess að þú fáir nægilegt magn lífsnauðsynlegra næringarefna daglega.

Gæði bætiefna skipta miklu máli. Solaray er virtur bætiefnaframleiðandi sem hefur starfað í yfir 40 ár á þessu sviði. Gæðaeftirlit þeirra er bæði virkt og strangt og vörurnar þeirra koma vel út bæði hjá innra eftirliti og hjá óháðum aðilum sem stunda gæðaprófanir bætiefna.

Once daily woman er alhliða fjölvítamín fyrir konur. Það inniheldur sérhannaða blöndu næringarefna, jurta og ensíma til að mæta daglegum þörfum kvenna.

Þó að konur og karlar hafi að stærstu leyti sömu næringarþarfir geta verið nokkrar undantekningar þar á.

Það sem er sérstakt við Once daily woman:

  • Öll helstu vítamín og steinefni
  • Góð form = góð upptaka
  • 18mg af járni
    • Hentar sérlega vel konum sem þurfa að huga að járnstöðu
  • 800mcg af fólínsýru
    • Nægilegt magn fyrir þær sem huga að barneignum
  • MSM og amínósýrur fyrir hár, húð og neglur
    • Styrkja hárvöxt og neglur
  • DIM – plöntuefni sem styður við hormónajafnvægi og brjóstaheilsu
  • Meltingarensím sem styðja við góða meltingu
  • Jurtablanda með tómötum, brokkolí og gulrótum
  • Ein á dag með mat
    • Mörgum finnst stór kostur að þurfa ekki að gleypa mörg hylki á dag

Once daily woman fæst hjá Heilsuhúsinu og Lyfju