Fyrir mér er Guli miðinn tákn um gæði. Vörurnar hafa auðvitað fylgt manni að einhverju leyti frá barnæsku enda held ég að allir sem búa hér á landi þekki til merkisins. Líklega hafa flestir notað vörur Gula miðans á einhverjum tímapunkti. Það er auðvitað mjög eðlilegt enda er vörulínan breið og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Sjálfur stunda ég mikið hreyfingu og hef gert síðan ég var gutti þegar ég byrjaði að sprikla í fótbolta á Stokkseyri. Fótbolti átti hug minn allan og ég ætlaði mér stóra hluti á vellinum,
Ég byrjaði snemma að æfa fótbolta og fór meðal annars til Bandaríkjanna og spilaði í háskólaboltanum þar, á leiki með U21 árs landsliðinu og spilaði í efstu deild með KR, Þrótti og Selfossi. Eftir að ég hætti í fótbolta fór ég fljótlega að mæta á hópæfingar í ketilbjölluþreki og samhliða kynntist ég crossfit. Ég hef þjálfað í um tólf ár og nýlega opnaði ég ásamt góðum hópi vina líkamsræktarstöðina Afrek, sem er í Skógarhlíðinni. Í Afreki leggjum við áherslu á skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar, sem henta fólki á öllum aldri, þetta hefur byrjað gríðarlega vel hjá okkur og hlökkum við mikið til næstu missera. Það ættu flestir að finna eitthvað við hæfi, hvort sem um er að ræða almennu tímana okkar, Afreksmömmur, Afrekspabbar eða Afreksunglingar, svo eitthvað sé nefnt. Ég starfa einnig sem flugumferðastjóri, er í sambúð og á tvo litla snillinga, þá Orra og Erik.
Henning Jónasson
- Höfundur: Henning Jónasson hefur verið viðriðinn íþróttir og líkamsrækt frá æskuárum. Hann rekur líkamsræktarstöðina Afrek í Skógarhlíð.




