Ráð í baráttunni við þunglyndi

Í fyrri pistli sem fjallaði um svartan hund og þunglyndi komu fram punktar um leiðir til bata.

Þar vísaði ég í myndband sem alþjóða heilbrigðisstofnunin gaf út til að vekja athygli á hve algengt og alvarlegt þunglyndi getur verið.

Samhliða og til viðbótar við ráðleggingarnar sem er að finna í myndbandinu langar mig að birta smá lista um aðferðir sem geta hjálpað.

  1. Leita sér aðstoðar, viðurkenna vandann og muna að þetta er ekkert til að skammast sín fyrir. Þunglyndi getur snert alla og skert lífsgæði viðkomandi verulega og haft áhrif á ástvini og fólkið í kring. Það að tala við sína nánustu og leita til fagaðila getur gert gæfumuninn.

 

  1. Hreyfing er að mínu mati besta aðferðin við að hlaupa af sér hundinn, sér í lagi hiit æfingar. Frábært er að gera þær úti en það er að sjálfsögðu líka hægt á líkamsræktarstöð.

 

  1. HAM eða hugræn atferlismeðferð. Þar er byggt á að skilja hvernig hugsanir hafa áhrif á hluti í lífi okkar. Leitast er við að leiðrétta svokallaðar hugsanaskekkjur sem valda vanlíðan, s.s leitast við að sjá alla hluti í öðru og jákvæðara ljósi.

 

  1. Mataræði skiptir gríðarlega miklu máli. Sýnt hefur verið fram á að unnin vara geti haft neikvæð áhrif á andlegan líðan. Þarna er hvítur sykur í fyrsta sæti. Þarna vil ég líka setja inn hvíta hveitið, casein í mjólk og flest allan unnin skyndibita. Vegna vinnslunnar (oft er þetta djúpsteikt þar sem notuð er feiti sem getur valdið bólgum í líkamanum) verða næringarefni af skornum skammti en það er einmitt það sem við þurfum, næring, ekki stútfullur magi af drasli. Næringarefnin stuðla einmitt að því að öll líkamsstarfsemi sé upp á sitt besta. Ef við erum að borða sykrað og unnið drasl er viðbúið að upptaka næringaefna í smáþörmum verði skert sökum bólgna sem þessi matvæli eru að valda. Þess ber að geta að geymsla á serótónín birgðum líkamans er að mestu í meltingarærunum. En serótónín er taugaboðefni, stundum kallað gleðihormónið og hefur áhrif á skap og líðan. Ef allt er í bólgum og vitleysu í meltingafærunum gefur það auga leið að það hefur áhrif á hormónabúskap líkamans og þannig á þunglyndi.

 

  1. Hugleiðslur, bæði núvitund (mindfullness) og innhverf íhugun (transendental meditation).

 

  1. Lyf geta stundum verið nauðsynleg til að koma fólki uppúr mesta svartnættinu. Það er þó alltaf ráðlegt að reiða sig ekki eingöngu á lyf heldur vinna úr vandamálinu á heildrænan hátt. Með hreyfingu, næringu og hugaræfingum.

 

Með von um gleði og kærleika

Víðir Þór

Íþrótta-og heilsufræðingur