Innköllun á Barnavít frá Gula Miðanum

Heilsa ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað Barnavít frá Gula miðanum þar sem ráðlagður neysluskammtur samkvæmt merkingum inniheldur of hátt gildi af A-vítamíni. Heilsa hefur beint tilmælum til allra söluaðila Barnavít að taka vöruna úr sölu. Jafnframt er óskað eftir að viðskiptavinir skili vörunni til næsta söluaðila, Heilsu ehf. eða fargi henni.

„Öryggi neytenda, og sérstaklega barna, er ávallt í forgangi hjá Heilsu. Innköllunin er varúðarráðsstöfun og vinnum við náið með Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og söluaðilum okkar að málinu. Við biðjum viðskiptavini sem eiga vöruna að skila henni til endurgreiðslu„.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Guli Miðinn
Vöruheiti: Barnavít
Strikamerki: 5690684000165
Vörunr: 00BAR
Framleiðandi: Tishcon corp.
Framleiðsluland: Bandaríkin
Innflytjandi: Heilsa ehf. Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.
Lotunúmer og best fyrir dagsetning: 1271-5240 30.6.2028, 2191-4201 31.12.2027, 2711-4220 30.04.2027
Dreifing: Austurbæjarapótek, Borgar Apótek, Lyfja, Krónan, Hagkaup, Fjarðarkaup, Lyfjaver, Heilsuver, Apótekarinn, Lyf og Heilsa, Lyfsalinn, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup, Kaupfélag Vestur – Húnvetninga, Þín verslun Kassinn.

Neytendur sem keypt hafa Barnavít frá Gula miðanum með framgreindum lotunúmerum eru beðnir um að neyta hennar ekki og geta þeir skila vörunni þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Heilsu ehf.

Ástæða innköllunar: of hátt magn af Vítamín-A mv. ráðlagðan dagskammt.
Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í gegnum netfangið heilsa@heilsa.is