Heilsa hefur gengið formlega frá kaupum á íslenska heilsuvörumerkinu Kulda, sem var stofnað árið 2021 í því skyni að bjóða íþróttafólki og öðrum virkum einstaklingum sem stunda útivist og hreyfingu, upp á notendavænar og árangursríkar kælivörur gegn bólgum, álagsmeiðslum og verkjum. Stofnendur Kulda eru Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor, Evert Víglundsson, CrossFit þjálfari, og Elías Guðmundsson athafnamaður.
Kælivörur Kulda eru hannaðar af stofnendum og innihalda kælihlífar, bakbelti og höfuðbönd sem hafa notið mikilla vinsældra meðal einstaklinga og fagfólks í heilbrigðisgeiranum. Vörurnar sameina hreyfanleika, þægindi og einfaldleika og eru sérstaklega hannaðar til að styðja við líkamlega endurheimt, verkjastjórnun og vellíðan eftir daglegt álag, hreyfingu, íþróttir, slys eða aðgerðir. Þær eru frábrugðnar í notkun en t.d. kælipokar, sem gjarnan leka, og mörgum finnast að auki of stífir og óþægilegir.
Við hjá Heilsu sjáum mikil tækifæri fólgin í áframhaldandi vexti Kulda enda verður vörumerkið hluti af vöruframboðinu okkar og með greiðan aðgang að öflugum dreifileiðum okkar m.a. til apóteka, lækningastofa og sérverslana um allt land. Vörurnar eru einnig til sölu á vefversluninni Kuldi – Kuldi.com
„Við sjáum mikla möguleika í vörumerki Kulda, sem talar beint inn í mikilvæga strauma í heilsu og lífsstíl – endurheimt, virkni og vellíðan – og gerir það á faglegan og notendavænan hátt. Kælivörur Kulda hafa þegar skapað sér mikið traust meðal einstaklinga og fagfólks og við ætlum að tryggja að þær verði enn aðgengilegri og á breiðari vettvangi en áður,“ segir Katrín Ýr Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Heilsu.
„Við erum stolt af því að sjá Kulda halda áfram að vaxa innan öflugs fyrirtækis eins og Heilsu – þar sem vörumerkið fær bæði stuðning og ný tækifæri til að blómstra,“ segir Sveinn Gunnar Björnsson, meðstofnandi Kulda.
Margrét Dagbjört Flygenring Pétursdóttir, Markaðs og Viðskiptaþróunarstjóri Heilsu og Katrín Ýr Magnúsdóttir, Framkvæmdastjóri Heilsu
Katrín Ýr Magnúsdóttir, Framkvæmdastjóri Heilsu og Sveinn Gunnar Björnsson, Meðstofnandi Kulda og Kírópraktor



