
Guli miðinn hefur nú skipt yfir í astaxanthin frá íslenska líftæknifyrirtækinu
Algalíf – hágæða hráefni sem framleitt er á vistvænan og sjálfbæran hátt á Íslandi.
Algalíf er leiðandi framleiðandi á náttúrulegu astaxanthini og nýtir einstakar aðstæður hér á landi.
Þau sérhæfa sig í ræktun á örþörungnum Haematococcus pluvialis, sem framleiðir astaxanthin í sinni náttúrulegu og virkustu mynd. Ræktunin fer fram í lokuðu kerfi með hreinu íslensku vatni og jarðvarma sem orkugjafa. Útdrátturinn er svo sjálfur framkvæmdur með CO₂-tækni sem tryggir hámarks hreinleika og lífvirkni.
Af hverju skiptir þetta máli?
Astaxanthin er eitt öflugasta náttúrulega andoxunarefni sem til er, og hefur sýnt jákvæð áhrif á:
- Húð og kollagenmyndun
- Orku og endurheimt
- Vernd gegn oxunarálagi og umhverfisstressi
- Heilbrigði augna og hjarta
Með því að velja Algalíf tryggjum við að Guli miðinn innihaldi astaxanthin sem er ekki aðeins öflugt og virkt, heldur líka framleitt á sjálfbæran, vistvænan og íslenskan hátt.
Við erum stolt af þessari breytingu og hlökkum til að halda áfram að bjóða upp á Heilsu í bestu gæðum.





