Frábær fæðubótaefni fyrir fólk á hreyfingu

Fyrir mér er Guli miðinn tákn um gæði. Vörurnar hafa auðvitað fylgt manni að einhverju leyti frá barnæsku enda held ég að allir sem búa hér á landi þekki til merkisins. Líklega hafa flestir notað vörur Gula miðans á einhverjum tímapunkti. Það er auðvitað mjög eðlilegt enda er vörulínan breið og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Sjálfur stunda ég mikið hreyfingu og hef gert síðan ég var gutti þegar ég byrjaði að sprikla í fótbolta á Stokkseyri. Fótbolti átti hug minn allan og ég ætlaði mér stóra hluti á vellinum, Kalksinkmagnesium það gekk vel framan af en því miður settu hnémeiðsli strik í reikninginn og ég þurfti að hætta alltof snemma. Eftir að ég hætti í boltanum byrjaði ég að æfa ketilbjölluþrek af miklum krafti og fór svo út í þjálfun með tíð og tíma. Nú er svo komið að ég er einn af eigendum líkamsræktarstöðvarinnar Afreks, sem opnaði í lok síðasta árs þar sem ég þjálfa auðvitað líka. Til að geta staðist álagið af stífum og fjölbreyttum æfingum sem og að geta staðið á gólfinu og sinnt þjálfun hef ég verið að nota vörur Gula miðans. Sérstaklega hef ég nýtt þau bætiefni sem hjálpa mér að vinna gegn eymslum í hnjánum.

Það hefur hjálpað mér mikið að nota vörur Gula miðans til að vinna gegn hnémeiðslunum og á sama tíma hafa bætiefnin einnig hjálpað öðrum liðamótum líkamans að standast álagið. Mest hef ég notað Liðaktín Forte og Kalk+Sink+Magnesium en þessi blanda hefur gert mikið fyrir mig og gert það að verkum að ég get æft meira, með minni verkjum og er fljótari að ná mér eftir erfiðar æfingar. Ég fann mikinn mun á liðamótunum eftir að ég byrjaði að nota Liðaktín Forte og á móti hefur Kalk+Sink+Magnesium hjálpað mér að jafna mig betur og fyrr en ég gerði áður.

Til að hjálpa ónæmiskerfinu og halda mér hraustum hef ég einnig notað Múltí Vít frá Gula miðanum. Að mínu mati hjálpar samspil þess sem og hinna bætiefnanna að vinna gegn flensum og öðrum pestum. Ég hef í raun orðið afar lítið veikur síðan ég fór að nota þessar vörur saman. Ég get heilshugar mælt með vörum Gula miðans og ekki skemmir fyrir að allar umbúðir eru umhverfisvænar og endurvinnanlegar.

Ég byrjaði snemma að æfa fótbolta og fór meðal annars til Bandaríkjanna og spilaði í háskólaboltanum þar, á leiki með U21 árs landsliðinu og spilaði í efstu deild með KR, Þrótti og Selfossi. Eftir að ég hætti í fótbolta fór ég fljótlega að mæta á hópæfingar í ketilbjölluþreki og samhliða kynntist ég crossfit. Ég hef þjálfað í um tólf ár og nýlega opnaði ég ásamt góðum hópi vina líkamsræktarstöðina Afrek, sem er í Skógarhlíðinni. Í Afreki leggjum við áherslu á skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar, sem henta fólki á öllum aldri, þetta hefur byrjað gríðarlega vel hjá okkur og hlökkum við mikið til næstu missera. Það ættu flestir að finna eitthvað við hæfi, hvort sem um er að ræða almennu tímana okkar, Afreksmömmur, Afrekspabbar eða Afreksunglingar, svo eitthvað sé nefnt. Ég starfa einnig sem flugumferðastjóri, er í sambúð og á tvo litla snillinga, þá Orra og Erik.

Henning Jónasson

  • Höfundur: Henning Jónasson hefur verið viðriðinn íþróttir og líkamsrækt frá æskuárum. Hann rekur líkamsræktarstöðina Afrek í Skógarhlíð.