Melting fæðunnar byrjar í munninum með því að tyggja matinn. Munnvatnið mýkir ekki aðeins fæðuna heldur gefur líka frá sér meltingarensím sem hjálpa til við að brjóta hana niður svo líkaminn geti nýtt næringarefnin úr matnum. Í raun eru meltingarensím lífsnauðsynleg og því mikilvægur hluti af meltingunni.
Það eru til margar gerðir af ensímum sem brjóta niður mismunandi næringarefni en þau helstu eru:
- Amylase – hjálpar til við að brjóta niður kolvetni en vöntun á þessu ensími leiðir oft til niðurgangs eftir kolvetnisríka máltíð.
- Lipase – vinnur með lifrinni að brjóta niður fitu í fæðunni. Skortur á þessu ensími getur verið vöntun á fituleysanlegum vítamínum eins og A, D, E og K.
- Protease – brýtur niður prótein í amínósýru og hjálpar til við að halda slæmum bakteríum frá smáþörmunum. Vöntun á protease getur leitt til ofnæmis á vissri fæðu.
Ef okkur skortir eitthvað af þessum ensímum, þá er líklegt að við fáum meltingartruflanir, eins og uppþembu, vindgang, krampa og niðurgang. Í slíku ástandi er hætta á að líkaminn geti ekki nýtt næringarefnin, þrátt fyrir holla og góða fæðu og getur leitt til orkuleysis og þreytu.
Meltingarensím frá Gula miðanum stuðla að betri meltingu og þar af leiðandi upptöku næringarefnanna. Blandan inniheldur helstu meltingarensímin, s.s. amylase, protease og lipase. Einnig inniheldur hún betaine hydrochloride sem hjálpar ensímunum að lifa af magasýruna til að geta gert sitt gagn.
Ensímin frá Gula miðanum er úr plöntum og henta því grænkerum og öllum þeim sem vilja bæta meltinguna og inniheldur engin aukaefni, bragðefni, litarefni, ger eða sykur.
Ef þú ert að upplifa meltingartruflanir eftir máltíð, eins og uppþembu, vindgang, niðurgang eða krampa, þá ættir þú að prófa að taka 1-2 töflur af ensímum frá Gula miðanum fyrir hverja máltíð, sem tryggja góða meltingu og lætur þér líða betur.
- Sölustaðir Gula miðans – smelltu hér




