Tófú getur verið bragðlaust og leiðinlegt en það á sko alls ekki við um þessa uppskrift. Sannkölluð bragðsprengja sem tikkar í öll boxin; sætt, súrt, salt, beiskt og umami! Æðislegt að bera fram með grænu salati og ofnbökuðu grænmeti.
Tófú:
- 500gr lífrænt Biona Tófú
- Lífræn Biona kókosolía til að steikja uppúr
- 1 msk sesamfræ frá Sólgæti
- Spírur til að bera fram með
Sósan:
- 125 gr Biona lífrænn kókossykur
- 3 msk vatn
- 1 msk Biona lífrænt rauðvínsedik
- 1/2 msk hrísgrjónaedik
- 2 msk soja eða tamari sósa
- 1/2 msk sambal oelek
- 1 tsk fersk rifin engiferrót
- 1 hvítlauksgeiri, rifinn
- 1/4 tsk sechuan pipar
- 1/2 ferskur chilli pipar, smátt skorinn
Aðferð:
- Byrjið á að pressa tófúið með því að vefja því inn í eldhúspappír eða hreina uppþvottatusku. Þrýstu varlega niður eða settu farg ofan á í smá tíma til að ná vökvanum úr því.
- Þerraðu tófúið að lokum með eldhúspappír svo það sé þurrt á yfirborðinu.
- Hitaðu nú kókosolíu á pönnu og steiktu tófúið í heilu lagi á öllum hliðum í 4-5 mínútur eða þar til það er gullið og stökkt á yfirborðinu.
- Taktu nú tófúið af pönnunni og geymdu til hliðar.
- Gerðu nú sósuna.
- Fyrst bræðir þú sykurinn í vatninu á pönnunni þar til hann leysist upp og þykknar aðeins
- Svo bætir þú restinni af innihaldsefnum sósunnar saman við og hrærir öllu vel saman
- Settu nú tófúið aftur á pönnuna og veltu því vel uppúr sósunni
- Skerðu það svo í þykkar sneiðar og berðu farm með sósunni, spírum og sesamfræjum ásamt grænu salati og/eða ofnbökuðu grænmeti.
Þessi uppskrift er fengin af biona.co.uk



