Einfaldur en ótrúlega góður réttur. Hversdags eða spari.
Stútfullur af næringu og bragði.
Innihald:
- 375 gr Biona lífrænt spelt tagliatelle
- 75 gr ferskt basil
- 1 hvítlauksgeiri
- 2 msk ristaðar valhnetur
- 1 tsk rifinn sítrónubörkur
- 3 msk sítrónusafi
- 2 lárperur
- 100 gr klettasalat
- 2 msk Biona lífræn ólífuolía
- 250 gr kirsuberjatómatar
Til að bera fram:
- 1 lárpera
- Svartur pipar
Aðferð:
- Sjóðið pasta skv. Leiðbeiningum á pakka. Sigtið en takið frá ¼ bolla af vatninu
- Setjið basil, hvítlauk, valhnetur, sítrónubörk og safa í matvinnsluvél eða blandara og blandið vel
- Bætið 1 lárperu, ólífuolíu og 2 msk af pastavatninu út í og vinnið þangað til allt hefur blandast vel saman.
- Smakkið til með salti og pipar
- Skerið tómatana í tvennt
- Blandið saman pasta, pestó klettakáli og tómötum í stóra skál.
- Skreytið með skorinni lárperu og myljið svartan pipar yfir.