Þessi er sæt og góð og passlega klístruð! Nógu góð til að seðja sykurlöngun en nógu holl til að bjóða krökkunum með kaffitímanum.
Innihald:
- 50 gr brúnt hrísgrjónamjöl
- 25 gr kókosmjöl
- 6 gr lyftiduft
- Smá sjávarsalt
- 120 gr þroskaður banani (ca.1 meðal banani)
- Innihald 3 poka YOGI Rooibos te
- 4 msk síróp (döðlu, agave eða kókos)
- 2 msk kókossykur
- 2 ½ msk fljótandi kókosolía
Aðferð:
- Hitið ofninn að 180°C
- Stappið banana
- Blandið öllu vel saman í skál
- Setjið bökunarpappír í kökuform og deigið þar ofaní
- Bakið í 30 mínútur og kælið