Heilsa frystir verð á Gula Miðanum

Gummi GM
Heilsa ehf., mun frá og með deginum í dag frysta verð á vítamín- og bætiefnalínu sinni undir merkjum Gula miðans. Vörulínan telur rúmlega 50 vörunúmer og hyggst Heilsa halda verði Gula miðans óbreyttu fram að áramótum. Markmiðið með verðfrystingunni er einna helst að styðja seljendur vörumerkisins í því að halda verðhækkunum í lágmarki og þannig sporna við frekari verðbólgu.

„Við teljum það vera skyldu okkar að leggja baráttunni gegn verðhækkunum lið. Heilsa Íslendinga skiptir okkur öllu máli og nú, þegar við finnum að fólk fer að halda að sér höndum viljum við sjá til þess að slíkt ástand bitni ekki á heilsu fólks,“ segir Guðmundur Halldór Björnsson, sviðsstjóri heildsölu hjá Heilsu.
Með þessu slæst Heilsa í hóp fyrirtækja sem hyggjast halda vöruverði óbreyttu næstu mánuði. Guðmundur Halldór skorar á önnur fyrirtæki, sem hafa burði til, að gera slíkt hið sama. „Við finnum öll hvernig verðbólgan er farin að hafa áhrif á heimilisbókhaldið. Stök fyrirtæki eða einstaklingar ná ekki að vinna bug á verðbólgunni, en með samhentu átaki getum við lagt baráttunni lið. Ef við tökum öll lítil skref í átt að sama markmiði þá er líklegra að við náum árangri,“ segir Guðmundur Halldór.

Um Heilsu og Gula miðann
Heilsa ehf. er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á heilsusamlegum og lífrænum matvörum, fæðubótarefnum, almennum og lífrænum snyrtivörum sem og vistvænum hreingerningarvörum. Guli miðinn er breið vítamín- og bætiefnalína sem hefur verið pökkuð og seld á Íslandi í yfir 30 ár. Undir Gula miðanum eru rúmlega 50 vörunúmer. Vörurnar má nálgast hjá rúmlega 30 verslana- og lyfsölukeðjum um land allt. Hægt er að sjá meira um Gula miðann á gulimidinn.is

  • Á gulimidinn.is er einnig að finna fræðslugreinar um vítamín Gula miðans og upplýsingar um sölustaði Gula miðans um land allt. Kynntu þér öll vítamínin á vefsíðu Gula miðans.