Framleiðendur Solaray eru frumkvöðlar í blöndun jurta. Solaray vörurnar komu fyrst á markað fyrir 40 árum og hefur áherslan frá upphafi verið að framleiða bætiefni úr hágæða jurtum eftir ströngustu gæðareglum. Bætiefnin hafa frá upphafi verið framleidd og seld í sérstökum grænmetishylkjum sem bjóða upp á betri nýtingu á virkum efnum jurtanna.
Solaray bætiefnin koma í hylkjum eða perlum og eru flestar vörurnar án glútens, gers, sykurs og mjólkur.
Vörurnar eru flokkaðar eftir litakerfi sem segir þér til um virkni hvers bætiefnis:
- Hvíta lokið
Inniheldur öll almenn bætiefni. Vítamín, steinefni og ýmsar bætiefnablöndur. - Bláa lokið
Fyrsta línan sem Solaray framleiddi. Jurtablöndur ásamt hómópatasöltum. - Fjólubláa lokið
Jurta extrakt. Virku efnin úr jurtinni einangruð að ákveðnum styrkleika úr plöntuhlutanum. - Græna lokið
Jurtabætiefni úr heilum jurtum. T.d. unnið úr rót, stöngli og blómum. - Svarta lokið
Ayurvedískar jurtir. Úr indversku lækningahefðinni. - Gula lokið
Lífrænt ræktaðar jurtir án aukaefna.
Solaray vörurnar eru allar grænprófaðar (green screened), en þær merkingar upplýsa viðskiptavini um gæðaprófanir á virkni jurtanna og því hvort vörurnar séu „cruelty free“, vegan og/eða framleiddar á umhverfisvænan máta.
Solaray fæst í heilsuverslunum og völdum apótekum og í netverslun Lyfju og Heilsuhússins; www.heilsuhusid.is.
Skoðaðu úrvalið og finndu þinn sólargeisla!




