Ein algengasta orsök blóðleysis er járnskortur. Járn er mjög mikilvægur þáttur í framleiðslu á hemóglóbíni en það flytur súrefni með blóðinu.
Algeng einkenni járnskorts eru:
- Þreyta
- Orkuleysi
- Svimi
- Föl húð
- Hjartsláttartruflanir
- Höfuðverkur
- Handa- og fótkuldi
- Brjóstverkir
Fæstir fá öll einkennin og auðvitað geta þessi einkenni verið merki um eitthvað allt annað en blóðleysi. Því er mikilvægt að leita til læknis og fá blóðprufu til að kanna málið.
Ég mæli hiklaust með Floravital, fyrir þá sem vilja gott veganjárn sem ekki ertir meltinguna, athugið líka að flestallt járn er einmitt ekki vegan. Eins mæli ég með því að skoða hinar vörurnar frá Salus, vandaðar vítamínblöndur í fljótandi formi og jurtamixtúrur, sem hjálpa við ýmsum kvillum. Þessar vörur eru mildar í maga og henta prýðilega fyrir þá ksem vilja ekki vera að bryðja töflur allan daginn.
Ef þig grunar að þú gætir verið með járnskort þá mæli ég með því að fara í blóðprufu á heilsugæslunni þinni, það er afgreitt hratt og þú ættir að fá niðurstöður innan nokkurra daga. Það kom mér persónulega á óvart hversu lítið mál þetta var þegar ég fór fyrst. Ég hef farið nokkrum sinnum undanfarin ár í blóðprufur til þess að fylgjast með járni, B12 o.fl., sem æskilegt er að vakta á veganmataræði.
Einkenni járnskorts geta verið hvimleið og dregið úr getu okkar til þess að áorka því sem okkur langar til. Ég hvet því fólk eindregið til þess að vera á varðbergi gegn þekktum einkennum, fylgjast með blóðgildum sínum ef það hefur áhyggjur og hlúa vel að sér ef það upplifir járnskort. Það er nóg af lausnum í boði og sumar hverjar eru náttúrulegar, mildar og þægilegar, til dæmis Floravital.
Floravital er járnmixtúra með C-vítamíni, B-vítamínum, járnríku grænmeti, ávöxtum og jurtum.
- Járn glúkonat sem er auðnýtanlegt form járns
- C-vítamín eflir upptöku járns í líkamanum
- B-vítamín styðja við eðlilega starfsemi taugakerfis og eðlilega orkuvinnslu líkamans
Floravital er bragðgóð og fer vel í magann. Hún hentar á meðgöngu og má gefa börnum með járnskort frá þriggja ára aldri.
Þú getur tekið Floravital óblandaða eða út í vatn eða safa. Sniðugt að blanda í rauðrófusafa því hann er líka járnríkur.
- Floravital fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og í netverslun og verslunum Heilsuhússins, Lyfjavers, Nettó. Heimkaupa og Lyfju.




