Við hjá Heilsu höfum nýverið bætt vörumerkinu Body Glide við vöruval okkar, sem styrkir enn frekar úrval okkar af vörum fyrir þá sem stunda útivist og hreyfingu. Body Glide er þekkt fyrir hágæða vörur sem vernda gegn núningi og ertingu á húðinni, sérstaklega við íþróttir og útivist. Vörurnar innihalda plöntuvax, þær eru vatnsheldar, ekki feitar, smita ekki. Hentar vel fyrir viðkvæma húð og má nota á börn. Þær eru einnig vegan-vottaðar og ekki prófaðar á dýrum.
Merkið á rætur sínar að rekja til LA, en það má segja að merkið sé fætt í Los Angeles maraþoninu árið 1996, þegar það var samstundis tekið í notkun af hlaupurum sem elskuðu vöruna frá fyrstu stundu. Í kjölfarið fór merkið til Kanada, Evrópu og er í dag fáanlegt um allan heim. Það er ekki að ástæðulausu að heimsklassa íþróttafólk um allan heim velur Body Glide, enda er varan gædd þeim eiginleikum að fólk finnur ekki fyrir henni einungis sekúndum eftir ásetningu og getur stundað sína daglegu hreifingu eða rútínu án þess að fá nuddsár og blöðrur!
Body Glide fæst í helstu apótekum, sportvöruverslunum og munu fleiri sölustaðir bætast við á næstu misserum.



