Betra ónæmiskerfi

Höfundur er Rakel Sif Sigurðardóttir Heilsuráðgjafi og Pilates kennari. Rakel er með bakgrunn í næringarfræði, jákvæðri sálfræði og hreyfingu. Hún rekur Rakel Health Living í Lúxemborg þar sem hún starfar við næringar-og heilsuráðgjöf og kennir Pilates ásamt hugleiðslu. Hún heldur einnig úti Pilatesstúdíói á netinu undir Rakelhealthyliving.com 

Ónæmiskerfi mannsins ver líkamann fyrir sýkingum og sjúkdómum af ýmsu tagi. Í raun má skipta því annars vegar í meðfætt ónæmiskerfi (ósérhæft), sem ber m.a. með sér erfðaefni foreldra okkar og gefur til kynna meiri eða minni líkur á að við þróum með okkur ákveðna sjúkdóma. Hins vegar býr líkami okkar yfir áunnu ónæmiskerfi (sérhæft), sem við höfum þeim mun meiri áhrif á. Við getum eflt það eða veikt með lífsstíl okkar, fæðuvali, hreyfingu o.s.frv.

Líkami okkar býr yfir ákveðnum þörfum til að uppfylla þær mismunandi kröfur sem settar eru á hann af mismunandi kerfum líkamans. T.d. þarf taugakerfi líkamans hin mismunandi B-vítamín í misjöfnu magni til að starfsemi og áhrif þess á önnur kerfi líkamans séu í jafnvægi. Líkaminn getur sjálfur fullnægt hinum ýmsu þörfum sínum en einnig þurfum við að fá þeim fullnægt úr umhverfinu, t.a.m. úr fæðu og með hreyfingu.
Á síðustu árum hefur rannsóknum fleygt mikið fram á sviði næringarfræðinnar og áhrif hinna ýmsu næringarefna á hin ýmsu kerfi mannslíkamans og heilsu mannsins.

C-vítamín er t.d. lífsnauðsynlegt líkamanum en hann getur ekki framleitt það sjálfur. Um er að ræða öflugt andoxunarefni sem eflir ónæmisvarnir líkamans og styrkir bæði starfsemi hins meðfædda og hins áunna ónæmiskerfis. Um er að ræða vatnsleysanlegt vítamín sem fyrirfinnst í miklu magni í ávöxtum og grænmeti, t.a.m. í appelsínum, jarðarberjum, paprikum, brokkolí og grænkáli. Upptaka líkamans á C-vítamíni úr bætiefnum virðist vera góð og ætti í það minnsta að styrkja varnir líkamans þegar inntaka á C-vítamíni úr fæðu er tæp eða ekki til staðar.

D-vítamín er fituleysanlegt vítamín og finnst í tveimur formum, D2 og D3. D2 kemur frá plöntuafurðum eins og sveppum og fæðu með viðbættu D- vítamíni eins og mjólk og morgunkorni. D3 kemur aðallega frá dýraafurðum eins og feitum fiski, lifur, eggjarauðu og fiskiolíu. D-vítamín styður við eðlilega steinefnaþéttni í beinum og tönnum og virðist einnig vera nauðsynlegt eðlilegri frumuþróun og styðja við ónæmiskerfið. Faraldsfræðilegar rannsóknir gefa til kynna að D-vítamín spili stórt hlutverk í sjálfsónæmissjúkdómum, sýkingum, krabbameinum o.s.frv. Þar sem inntaka í gegnum fæðu og geislar sólar virðast ekki nægja líkamanum til að uppfylla ráðlagðan dagskammt þá er skynsamlegt að taka reglulega inn D-vítamín í gegnum bætiefni.

D+K vítamín eru ný og spennandi blanda frá Gula miðanum. Eins og D-vítamín þá er K-vítamín fituleysanlegt. Eiginleikar K-vítamíns hvað varðar blóðstorknun er vel þekkt en undanfarið hefur áhersla verið lögð á í rannsóknum að skoða áhrif vítamínsins á styrk og heilsu beina ásamt æðaheilsu. K-vítamín er m.a. nauðsynlegt nýtingu líkamans á ákveðnum próteinum, sem virðast draga úr æðakölkun og áhrifum hennar á heilsu mannsins. D+K-vítamínblandan er góð viðbót fyrir þá sem vilja stuðla að sterku stoðkerfi, öflugu ónæmiskerfi og hraustum líkama.

Inntaka á bætiefnum kemur ekki í staðinn fyrir að hlúa að heilbrigðum lífsstíl. Nægur svefn, dagleg hreyfing, jafnvægi í næringu ásamt eflingu á félagslegri heilsu og viðhaldi á streitustjórnun ættu að vera í forgangi til að upplifa vellíðan í daglegu lífi. Bætiefni geta stutt heilsu okkar með mismunandi hætti og er skynsamlegt að leita sér ráðgjafar þegar við hugum að breytingum hvað heilsu okkar varðar.

Guli miðinn framleiðir bætiefni, sérstaklega með þarfir fólks á norðlægum slóðum í huga. Vörulínan er framleidd án allra óæskilegra aukaefna eins og til dæmis rotvarnarefna, uppfylliefna eða bragðefna. Vörurnar eru í brúnum glerglösum sem varðveita gæði og verja innihaldið fyrir sólarljósi. Umhverfið spilar stóran þátt í vali Gula miðans á umbúðum en þær eru endurvinnanlegar. Vörurnar eru GMP-vottaðar en GMP stendur fyrir góða framleiðsluhætti og er ákveðinn gæðastimpill fyrir vörumerki í matvælaiðnaði.

Á gulimidinn.is er einnig að finna fræðslugreinar um vítamín Gula miðans og upplýsingar um sölustaði um land allt.