Vörurnar frá Biona eru lífrænar og dásamlega bragðgóðar. Prófaðu þessa hollu ljúffengu uppskrift af fylltum sætum kartöflum.
Innihaldsefni:
- 4 meðalstórar sætar kartöflur

- 1 msk Biona lífræn ólífuolía
- 1 stór laukur, skorinn smátt
- 2 hvítlauksgeirar, skornir smátt
- 1 tsk chilliduft
- 1 tsk þurrkað oreganó
- 1/2 tsk kúmen
- 1/4 tsk chipotle chili duft eða cayenne pipar,
má sleppa og fer eftir smekk - 1 dós af Biona lífrænum svörtum baunum
- 150ml Biona Organic tómatpassata

- salt og pipar eftir smekk
- Handfylli af rifnum osti
- Kóríander, avókadó og jógúrt til skreytingar
Aðferð:
- Hitaðu ofninn í 200 gráður.
- Stingdu göt í sætu kartöflurnar með gafli og settu síðan á bökunarplötu. Steiktu kartöflur í ofni í 40-50 mínútur eða þar til þú getur stungið gafli eða hníf í miðja kartöfluna. Á meðan sætu kartöflurnar eru í ofninum, hitaðu olíu við meðalháan hita á pönnu.
- Steiktu lauk og hvítlauk þar til laukurinn mýkist eða um 6-8 mínútur.
- Næst skal blanda chili dufti, oregano, kúmeni og chipotle chili dufti eða cayenne, fer eftir smekk.
- Blandaðu baunum og passata saman við. Láttu suðuna koma upp og lækkaðu síðan hitann og leyfðu að malla í nokkra mínútur.
- Smakkaðu til og bragðbættu með salti og pipar eða viðbótarkryddi ef þurfa þykir. Þegar sætu kartöfurnar eru tilbúnar skaltu skera þær í tvennt.
- Settu væna skeið af baunamaukinu á hvern kartöfuhelming og stráðu svo osti yfir.
- Toppaðu síðan með kóríander, avókadó og jógúrti.
Verði þér að góðu!



