Endursendingar og vöruskil

Endursendingar og vöruskil (gildir ekki um lyf) – Sjá „Um Okkur – Þjónusta“ fyrir pantanir og endursendingar lyfja.

Eftirfarandi reglur gilda um endursendingar vara til Heilsu. Fyrirspurnir varðandi endursendingar má senda á netfang Heilsu: heilsa@heilsa.is


Endursendingarseðill skal fylgja öllum endursendum vörum, og þar þarf að koma fram reikningsnúmer fyrir hugsanlega endurgreiðslu.
• Sendingin skal vera greinilega merkt nafni sendanda.
• Ekki er tekið við endursendum vörum nema af þeim ástæðum sem tilgreindar eru hér að neðan, nema sérstaklega hafi verið samið um annað.

*Fyrnd vara
Ekki er veitt endurgreiðsla fyrir fyrndar vörur nema um það hafi sérstaklega verið samið við söluaðila.

*Gölluð eða skemmd vara
Vörur sem berast skemmdar eða gölluð eru endurgreiddar að fullu, að því gefnu að þeim fylgi greinargóð lýsing á skemmdinni eða galla.
*Ef vara er gölluð, skemmd eða fyrnd fyrir upphæð undir 15.000 skal ráðfæra sig við Heilsu um hvort varan eigi að vera send eða förguð.

Innkölluð vara
Ef vara hefur verið innkölluð er hún endurgreidd að fullu, að því tilskildu að henni sé skilað innan eins mánaðar frá útgefinni innköllunartilkynningu.

Röng pöntun
Hægt er að skila vörum sem pantaðar hafa verið ranglega, svo framarlega sem eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Varan þarf að geymast við stofuhita.
  • Skil þurfa að eiga sér stað innan viku frá afhendingu og í samráði við þjónustufulltrúa Heilsu.
  • Varan skal vera í órofinni, upprunalegri pakkningu frá framleiðanda.
  • Fylgja þarf útfylltur endursendingarseðill með vörunni.
  • Flutningur skal fara fram með flutningsaðila sem Heilsa samþykkir.

Afgreiðslumistök
Ef mistök verða í afgreiðslu af hálfu Heilsu eru þau leiðrétt án tafar og kaupanda að kostnaðarlausu. Vörur sem afgreiddar eru ranglega þurfa þó að berast aftur innan viku frá afhendingu.

Skemmdir í flutningi
Vörur sem skemmast í flutningi eru endurgreiddar að fullu, að því gefnu að þær séu endursendar innan viku frá afhendingu og að notast hafi verið við flutningsaðila sem Heilsa samþykkir.