Optibac | heilbrigðari meltingarflóra fyrir alla

Góðgerlar eru mikilvægir til að viðhalda og bæta meltingarflóruna og þar með styrkja ónæmiskerfið. Ónæmiskerfið spilar lykilhlutverk þegar kemur að almennri heilsu, það ver líkamann fyrir áreiti og sýkingum og heldur honum heilbrigðum. Ónæmiskerfið er staðsett í meltingarveginum að miklu leyti og því skiptir miklu máli að viðhalda heilbrigðri meltingarflóru til að viðhalda góðri heilsu. Optibac góðgerlarnir eru frábær leið til að koma jafnvægi á og bæta meltingarflóruna.

Optibac eru sérfræðingar í góðgerlum og bjóða uppá fjölbreytt úrval af framúrskarandi góðgerlablöndum sem henta ólíkum aldurshópum, vandamálum og áherslum. Hver og einn finnur því góðgerla frá Optibac sem hentar sínum þörfum. Búið er að sanna virkni hverrar vöru frá Optibac og liggur fjöldinn allur af klínískum rannsóknum að baki þeirra.

Allar vörurnar frá Optibac innihalda lifandi góðgerla sem sannað hefur verið að þola magasýrur og sölt og komast því lifandi niður í smáþarmana þar sem einstök virkni þeirra hefst. Optibac hylkin eru opnanleg og duftið má setja í vatn eða á matinn, hentugt fyrir þá sem eiga erfitt með að gleypa hylki, en þeir geta einnig fengið sér góðgerla í bragðgóðu gúmmíformi. Börnin geta valið um dropa, duft eða sykurlaust gúmmí.

Þú færð Optibac í apótekum og völdum matvöruverslunum um land allt.