
Guli Miðinn
Í fjóra áratugi hefur Guli Miðinn verið eitt þekktasta vörumerki landsins í vítamínum og bætiefnum.
Gæði á góðu verði síðan 1986.
Í fjóra áratugi hefur Guli Miðinn verið eitt þekktasta vörumerki landsins í vítamínum og bætiefnum. Frá árinu 1986 hefur markmiðið verið skýrt – að bjóða vandaðar heilsuvörur á sanngjörnu verði án þess að gera málamiðlanir um gæði.
Í dag býður Guli Miðinn upp á fjölbreytt úrval vítamína, steinefna og bætiefna sem styðja við daglega heilsu og vellíðan á öllum æviskeiðum. Vörurnar eru þróaðar með áherslu á vönduð hráefni, áreiðanleg gæði og formúlur sem uppfylla þarfir nútímafólks.
Guli Miðinn er eigið vörumerki Heilsu og byggir á áratuga reynslu, trausti og þeirri sannfæringu að góð heilsa eigi að vera aðgengileg öllum.

Járn munnúði
Munnúði með járni, C-vítamíni og fólati. fyrir daglega notkun. Með myntu- og appelsínubragði.

B12 súper munnúði
B12-vítamín munnúði með sítrónu- og mentólbragði. Hver dagskammtur veitir 1000 μg af metýlkóbalamíni.

D súper 3000 munnúði
D3-vítamín munnúði með náttúrulegu appelsínubragði. Hver úði veitir 3000 AE (75 μg) af D3-vítamíni.

Barna D vít munnúði
D3-vítamín munnúði fyrir börn með náttúrulegu appelsínubragði. Hver úði veitir 400 AE (10 μg) af D3-vítamíni.

Melatónín munnúði
Melatónín munnúði með frískandi myntu- og appelsínubragði. Hver úði veitir 1 mg af melatóníni. Auðveldur í notkun og hentar vel sem hluti af kvöldrútínu.

Þarahylki
Þarahylki með 250 µg af joði úr brúnþörungaþykkni í hverju hylki. Joð stuðlar að eðlilegri starfsemi skjaldkirtils og eðlilegri framleiðslu skjaldkirtilshormóna.

Magnesíum Citrate
Magnesium Citrate er magnesíum í góðu frásoganlegu formi sem styður við vöðva, taugar og orku í daglegu lífi. Magnesíum er eitt mikilvægasta steinefni líkamans og tekur þátt í hundruðum ferla í líkamanum.

B12-vítamín – með fólinsýru og B-6
Stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum og starfsemi taugakerfis

D3-vítamín 120 perlur
D3-vítamín (kólekalsíferól) styður við eðlilega upptöku kalsíums og fosfórs og gegnir lykilhlutverki í heilbrigðum beinum, tönnum og vöðvastarfsemi. Það styður einnig við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins. Vegan.

Lífræn Ashwagandha
Lífræn Ashwahandha plönturót úr náttúrunni sem talin stuðla að jafnvægi og hjálpa líkamanum að takast betur á við streitu, þreytu og orkuleysi.

Magnesíum Glýsinat

Steinefnablanda
Steinefnablanda er einföld dagleg viðbót sem inniheldur mikilvægar steinefni sem líkaminn þarf á að halda. Hún styður við bein, vöðva, taugakerfi og almenna daglega vellíðan

D3 - Súper – Ampli-D
D-vítamín með Ampli-D® (calcifediol) 10 µg er auðupptakanlegt form D-vítamíns sem styður við bein, tennur, vöðvastarfsemi og ónæmiskerfi. Ampli-D er virkt form sem líkaminn getur nýtt hratt og á áhrifaríkan hátt.

Sink Píkólínat
Sink Pikólinat 15 mg er auðupptakanlegt form sinks sem styður við ónæmiskerfi, húð, hár og neglur. Sink gegnir einnig mikilvægu hlutverki í frjósemi, hormónajafnvægi og almennri daglegri vellíðan. Vegan.

Acidophilus
Acidophilus er góðgerla bætiefni sem inniheldur Lactobacillus acidophilus sem styður við eðlilega þarmaflóru og meltingu. Hentar vel til daglegrar notkunar og til að styðja við jafnvægi í meltingarkerfinu.

Járn – Með C-vítamíni
Járn + C-vítamín styður við orku, blóðmyndun og almenna vellíðan. Járn gegnir lykilhlutverki í myndun rauðra blóðkorna á meðan C-vítamín eykur upptöku járns og styður við ónæmiskerfið. Vegan.

Túrmerik
Túrmerik + Pipar er jurtablönda sem styður við eðlilegt bólgujafnvægi í líkamanum og almenna vellíðan. Svartur pipar eykur upptöku túrmeriks í líkamanum og hjálpar til við að hámarka virkni þess.
Hárkúr
Hárkúr er öflugt fjölvítamín fyrir hár, húð og neglur sem inniheldur vítamín, steinefni, amínósýrur og plöntuþykkni sem styðja við eðlilegan hárvöxt, orku og almenna vellíðan.

CoQ10
CoQ10 50 mg (ubiquinol) er virkt form kóensíms Q10 sem styður við eðlilega orkuvinnslu í frumum og hefur öflug andoxunaráhrif. Styður við hjarta- og æðakerfi og almenna vellíðan. Vegan.

Magnesía – Magnesíum Hýdroxíð
Magnesium Hydroxid er magnesíum í einföldu formi sem er oft notað til að styðja við meltingu og reglulegar hægðir. Magnesíum er mikilvægt steinefni sem tekur þátt í vöðvastarfsemi, taugum og almennri líkamsstarfsemi. -
C-vítamín 1000 mg
C - Súper er öflugur 1000 mg skammtur af C-vítamíni ásamt rútíni og sítrus-bíóflavóníðum. C-vítamín styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins, hjálpar til við að draga úr þreytu og örmögnun og stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir húð, bein og æðar. Vegan.

C-vítamín 500 mg
C vítamínið veitir 500 mg af C-vítamíni í hverri töflu og er tilvalið fyrir daglega notkun. C-vítamín styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins, hjálpar til við að draga úr þreytu og örmögnun og ver frumur líkamans gegn oxunarálagi. Vegan.

D3-vítamín + K2
D3 & K2 vítamín eru fituleysanleg vítamín sem vinna saman að því að styðja við eðlilega upptöku kalsíums og fosfórs. Þau styðja þannig við heilbrigð bein, tennur og vöðvastarfsemi ásamt eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins.

Kalk + Sink + Magnesíum
Kalk + Magnesíum + Sink er einföld steinefnablöndu sem styður við bein, tennur, vöðvastarfsemi og ónæmiskerfi. Kalk og magnesíum vinna saman að beinheilsu á meðan sink styður við frumur og almenna vellíðan.
Fróðleikur um Gula Miðann
Við leggjum áherslu á vönduð hráefni, rétta styrkleika og góðar samsetningar. Hráefni eru valin út frá skilgreindum gæðakröfum og við þróum vörulínuna stöðugt áfram með það að markmiði að bjóða gæði á góðu verði.
Þar sem það skiptir máli veljum við sérhæfð og virk form vítamína og steinefna.
Hráefnin í Gula Miðanum koma víðs vegar að úr heiminum frá GMP-vottuðum framleiðendum og eru valin með áherslu á gæði, hreinleika og áreiðanleika.
Þegar við getum nýtt vönduð íslensk hráefni gerum við það og tökum íslenskan uppruna sérstaklega fram á umbúðum vörunnar.
Guli Miðinn er íslenskt vörumerki Heilsu og stór hluti framleiðsluferlisins fer fram hér á landi.
Vörunum er pakkað á Íslandi, bæði hjá okkur í Heilsu og hjá PharmArctica á Grenivík.
Pökkunin fer fram samkvæmt þeim gæða-, hreinlætis- og matvælaöryggiskröfum sem gilda hér á landi um fæðubótarefni.
Við erum stolt af því að styðja við íslenska framleiðslu, þekkingu og störf.
Gæði og öryggi eru rauður þráður í framleiðslu Gula miðans. Við gerum ríkar kröfur til hráefna og framleiðenda, umbúðabirgja og pökkunarfyrirtækja.
Við vinnum samkvæmt skilgreindum verkferlum og framleiðslulotur eru skráðar og rekjanlegar – frá hráefni til fullunninnar vöru.
Á 40 ára afmælisárinu fær Guli Miðinn nýtt útlit – og nýjar umbúðir.
Við erum að færa vörulínuna úr gler- og álumbúðum yfir í léttari umbúðir úr hágæða PET-plasti. Nýju umbúðirnar innihalda endurunnið plast og eru endurvinnanlegar, sem gerir flokkun þeirra einfaldari.
Léttari umbúðir þýða jafnframt minni þyngd í flutningum og minni hættu á broti og slysum við meðhöndlun og í verslunum.
Gæði og öryggi eru áfram rauður þráður í öllu sem við gerum og sömu ríku kröfur eru gerðar til hráefna, framleiðslu og pökkunar.
Nýtt útlit. Einfaldari flokkun. Sömu áherslur á gæði.
Algengar spurningar
Á umbúðum vörunnar og á viðkomandi vörusíðu á heilsa.is.
Það fer eftir vörum og þínum þörfum. Gæta þarf sérstaklega að því að sama vítamín eða steinefni sé ekki tekið úr mörgum vörum þannig að heildarmagn verði of hátt.
Upplýsingarnar eru merktar á umbúðum vörunnar.
Guli Miðinn fæst í matvöruverslunum og apótekum um land allt. Sjá upplýsingar um sölustaði á heilsa.is
Innkallanir og öryggistilkynningar
Sjá heilsa.is


