
Guli Miðinn
Í fjóra áratugi hefur Guli Miðinn verið eitt þekktasta vörumerki landsins í vítamínum og bætiefnum.
Gæði á góðu verði síðan 1986.
Í fjóra áratugi hefur Guli Miðinn verið eitt þekktasta vörumerki landsins í vítamínum og bætiefnum. Frá árinu 1986 hefur markmiðið verið skýrt – að bjóða vandaðar heilsuvörur á sanngjörnu verði án þess að gera málamiðlanir um gæði.
Í dag býður Guli Miðinn upp á fjölbreytt úrval vítamína, steinefna og bætiefna sem styðja við daglega heilsu og vellíðan á öllum æviskeiðum. Vörurnar eru þróaðar með áherslu á vönduð hráefni, áreiðanleg gæði og formúlur sem uppfylla þarfir nútímafólks.
Guli Miðinn er eigið vörumerki Heilsu og byggir á áratuga reynslu, trausti og þeirri sannfæringu að góð heilsa eigi að vera aðgengileg öllum.

B12 súper munnúði
B12-vítamín munnúði með sítrónu- og mentólbragði. Hver dagskammtur veitir 1000 μg af metýlkóbalamíni.

B12-vítamín – með fólinsýru og B-6
Stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum og starfsemi taugakerfis

Fólinsýra
Fólínsýra er hér í formi methylfolate (5-MTHF), sem er virka og lífvirka form fólats (B9-vítamíns). Ólíkt hefðbundinni fólínsýru þarf þetta form ekki umbreytingu í líkamanum, sem gerir það aðgengilegt og auðnýtanlegt.
B12- Súper sugutöflur
Bragðgóðar sugutöflur sem leysast hægt upp í munni og upptaka vítamínsins fer fram í gegn um slímhúð munns og munnhols. Sérhannað með hámarks upptöku í huga
B6-vítamín
B6-vítamín er eitt af lykilvítamínum líkamans og kemur að hundruðum efnahvarfa sem tengjast orkuvinnslu, taugakerfi og almennri heilsu.
B-Stress
B-Stress er öflug B-vítamínblanda með 250 mg af C-vítamíni sem styður við eðlilega orkuvinnslu, taugakerfið og ónæmiskerfið. Tilvalin dagleg viðbót fyrir þá sem vilja styðja við orku, andlega vellíðan og heilbrigði húðar, hárs og nagla
B-Súper
B-Súper Sterkari er extra sterk B-vítamínblanda sem inniheldur öll helstu B-vítamín í háum styrkleika. Formúlan styður við eðlilega orkuvinnslu, taugakerfið og blóðmyndun og hentar vel þeim sem vilja tryggja góða daglega inntöku B-vítamína. Vegan.
B-Súper
B-Súper Sterkari er extra sterk B-vítamínblanda sem inniheldur öll helstu B-vítamín í háum styrkleika. Formúlan styður við eðlilega orkuvinnslu, taugakerfið og blóðmyndun og hentar vel þeim sem vilja tryggja góða daglega inntöku B-vítamína. Vegan.
Fróðleikur um Gula Miðann
Við leggjum áherslu á vönduð hráefni, rétta styrkleika og góðar samsetningar. Hráefni eru valin út frá skilgreindum gæðakröfum og við þróum vörulínuna stöðugt áfram með það að markmiði að bjóða gæði á góðu verði.
Þar sem það skiptir máli veljum við sérhæfð og virk form vítamína og steinefna.
Hráefnin í Gula Miðanum koma víðs vegar að úr heiminum frá GMP-vottuðum framleiðendum og eru valin með áherslu á gæði, hreinleika og áreiðanleika.
Þegar við getum nýtt vönduð íslensk hráefni gerum við það og tökum íslenskan uppruna sérstaklega fram á umbúðum vörunnar.
Guli Miðinn er íslenskt vörumerki Heilsu og stór hluti framleiðsluferlisins fer fram hér á landi.
Vörunum er pakkað á Íslandi, bæði hjá okkur í Heilsu og hjá PharmArctica á Grenivík.
Pökkunin fer fram samkvæmt þeim gæða-, hreinlætis- og matvælaöryggiskröfum sem gilda hér á landi um fæðubótarefni.
Við erum stolt af því að styðja við íslenska framleiðslu, þekkingu og störf.
Gæði og öryggi eru rauður þráður í framleiðslu Gula miðans. Við gerum ríkar kröfur til hráefna og framleiðenda, umbúðabirgja og pökkunarfyrirtækja.
Við vinnum samkvæmt skilgreindum verkferlum og framleiðslulotur eru skráðar og rekjanlegar – frá hráefni til fullunninnar vöru.
Á 40 ára afmælisárinu fær Guli Miðinn nýtt útlit – og nýjar umbúðir.
Við erum að færa vörulínuna úr gler- og álumbúðum yfir í léttari umbúðir úr hágæða PET-plasti. Nýju umbúðirnar innihalda endurunnið plast og eru endurvinnanlegar, sem gerir flokkun þeirra einfaldari.
Léttari umbúðir þýða jafnframt minni þyngd í flutningum og minni hættu á broti og slysum við meðhöndlun og í verslunum.
Gæði og öryggi eru áfram rauður þráður í öllu sem við gerum og sömu ríku kröfur eru gerðar til hráefna, framleiðslu og pökkunar.
Nýtt útlit. Einfaldari flokkun. Sömu áherslur á gæði.
Algengar spurningar
Á umbúðum vörunnar og á viðkomandi vörusíðu á heilsa.is.
Það fer eftir vörum og þínum þörfum. Gæta þarf sérstaklega að því að sama vítamín eða steinefni sé ekki tekið úr mörgum vörum þannig að heildarmagn verði of hátt.
Upplýsingarnar eru merktar á umbúðum vörunnar.
Guli Miðinn fæst í matvöruverslunum og apótekum um land allt. Sjá upplýsingar um sölustaði á heilsa.is
Innkallanir og öryggistilkynningar
Sjá heilsa.is


