Múltí Vít freyðitöflur með appelsínubragði
Múltí Vít frá Gula miðanum er fjölvítamín í formi freyðitaflna með ljúffengu appelsínubragði. Hver tafla inniheldur 10 vítamín sem styðja meðal annars við eðlileg orkuefnaskipti, starfsemi taugakerfisins og ónæmiskerfisins.
Guli miðinn Múltí Vít inniheldur 10 vítamín sem styðja við ýmsa mikilvæga starfsemi líkamans. Vítamínin B1, B2, B3, B5, B6, B7 og B12 stuðla að eðlilegum orkuefnaskiptum, en C-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og hjálpar til við að draga úr þreytu og lúa.
B-vítamínin styðja einnig við eðlilega starfsemi taugakerfisins, en C- og E-vítamín stuðla að vernd frumna gegn oxunarálagi. Hver tafla veitir 100% af næringarviðmiðunargildi allra 10 vítamínanna.
Freyðitöflurnar eru með appelsínubragði og auðveldar í notkun – leystu eina töflu upp í glasi af vatni og njóttu.
Ein tafla á dag, leyst upp í glasi af vatni (200 ml).
Sýra (sítrónusýra), sýrustillir (natríumbíkarbónat), umfangsaukar (sorbitól, maíssterkja, maltódextrín), L-askorbínsýra (C-vítamín), bragðefni, rauðrófusafaduft, sætuefni (súkralósi), DL-alfa-tókóferýl asetat (E-vítamín), níasínamíð (B3-vítamín), kalsíum-D-pantótenat (B5-vítamín), pýrídoxínklórhýdrat (B6-vítamín), litarefni (ríbóflavín (B2-vítamín)), þíamínmónónítrat (B1-vítamín), pteroylmonoglutamic acid (fólasín, B9-vítamín), D-bíótín (B7-vítamín), cýanókóbalamín (B12-vítamín).