Skip to content

Home

Guli miðinn 40 years old

Guli Miðinn has a 40 year old birthay and there fore it as gotten a new and modnern look. The products continue to be developed with the needs of Icelanders in mind and produced according to strict quality standards. The new packaging combines fresh design with the same trusted quality at a good price that Guli Miðinn has stood for since 1986.

See article

Follow us

Follow us on socials and stay in the loop

“Getum við gert þetta einu sinni enn?“

Setning sem er sögð sirka 400 sinnum á tökudegi 😆

Tveir tökudagar í ágúst og við hittum á sól, hita og Ísland í sínu allra besta skapi ☀️

En á bakvið þessar sekúndur sem enda á skjánum eru heilu dagarnir: uppsetning, myndavélar, ljós, hljóð, tilfæringar, endurtekningar, flugdreki fastur upp á þaki og ótrúlegt teymi sem lætur allt ganga upp.

Smá brot af því sem gerðist bakvið tjöldin á Gula miðanum 💛🎬
“Guli miðinn hefur verið til staðar frá kynslóð til kynslóðar í 40 ár”

Við hjá Heilsu kynnum með stolti nýju auglýsinguna fyrir Gula miðann ✨

Við vildum fanga hversdagsleikann og aðstæður sem við þekkjum öll úr okkar daglega lífi. Litlu augnablikin sem verða að kjarna minningum. 

Það var aldrei spurning um annað en að nota eitt ástsælasta lag þjóðarinnar, Gleðibankann, sem fagnar einnig 40 árum í ár. Lag sem hefur fylgt okkur kynslóð til kynslóðar, líkt og Guli miðinn 💛✨

Í tilefni tímamótanna settum við bæði Gula miðann og Gleðibankann í nýjan búning og vonum að þessi ferska útfærsla blási enn meiri lífsgleði í brjóst þér. 

Guli miðinn – gæði á góðu verði, í 40 ár 💛

Sérstakar þakkir til Sigurðar og Antons og svo auðvitað Hildar Karenar, Snorra, Sigríðar, Emilíu & Eriks, sem eru stjörnur herferðarinnar 🫶🏼

Credit:
Leikstjórar: Sigurður Pétur & Anton Darri
Framleiðsla: Bjartur Norðfjörð – Öræfi Lab
Kvikmyndatökustjóri: Svava Lovísa
Lýsingarstjóri: Óttar Andri
Aðstoðarmaður tökumanns: Ísak Magnússon
Grafísk hönnun: Anton Darri
Klipping: Sigurður Pétur
Litaleiðrétting: Bjarki Guðjónsson – Trickshot
Hljóðblöndun: Nick Cathcart Jones
Tónlist: Lúpína
Stílisering: Heilsa
Nýtt útlit OG nýjar umbúðir 💛

Samhliða nýju útliti Gula miðans höfum við breytt umbúðunum okkar. Dökki liturinn helst áfram til að verja innihaldið fyrir birtu, en glösin eru nú úr endurunnu og endurvinnanlegu rPET plasti í stað glers.

Nýju glösin eru mun léttari en glerglösin. Það þýðir minni þyngd í flutningum og þar með lægra kolefnisfótspor flutningsins. Léttari umbúðir eru jafnframt hagkvæmari í flutningi og hjálpa okkur að halda kostnaði niðri á tímum hækkandi hráefnisverðs.

Það skiptir okkur máli, því við viljum áfram standa við eitt af grundvallarloforðum Gula miðans: gæði á góðu verði.

Og flokkunin verður einfaldari ♻️ Nú geta umbúðirnar farið saman í plastflokkun heima, í stað þess að þurfa að aðskilja mismunandi efni og fara sérstaklega með þau á endurvinnslustöð.

Nýtt útlit. Léttari umbúðir. Sömu áherslur á gæði og gott verð. 💛