Fara í meginmál
Guli Miðinn 40 ára – traust gæði í nýju útliti

Guli Miðinn 40 ára – traust gæði í nýju útliti

Nýtt útlit. Sömu traustu gæðin á sama góða verðinu.

Frá árinu 1986 hefur Guli Miðinn boðið Íslendingum vítamín og bætiefni á góðu verði og stutt við heilsu þjóðarinnar, kynslóð fram af kynslóð. Í ár fagnar Guli Miðinn 40 ára afmæli – og við ætlum að halda áfram á sömu braut um ókomin ár.

Í tilefni tímamótanna hefur Guli Miðinn fengið ferskt og nútímalegt útlit, en það sem skiptir mestu máli helst óbreytt: traust gæði á góðu verði.

Nýtt útlit – sami Guli Miðinn

Nýju umbúðirnar eru bjartari, litríkari og skýrari. Markmiðið var að færa Gula Miðann inn í nýjan áratug án þess að missa það sem vörumerkið hefur staðið fyrir frá upphafi.

Vörurnar eru áfram þróaðar með þarfir Íslendinga að leiðarljósi og framleiddar samkvæmt ströngum gæðakröfum.

Árs vinna að baki

Á bak við nýtt útlit Gula Miðans liggur rúmlega árs vinna og náið samstarf fjölmargra aðila. Innanhússteymi Heilsu hefur unnið að verkefninu ásamt söluaðilum, samstarfsaðilum og markaðsstofu við að móta næsta kafla í sögu þessa rótgróna íslenska vörumerkis.

Í ferlinu var horft til alls frá hönnun og umbúðum yfir í vöruúrval, upplýsingagjöf og upplifun neytenda. Markmiðið var skýrt: að nútímavæða Gula Miðann án þess að breyta því sem hefur gert vörumerkið að traustum hluta af heimilum landsins í 40 ár.

Fyrir alla fjölskylduna

Úrval Gula Miðans hefur vaxið og þróast í takt við breyttar þarfir Íslendinga. Í dag spannar línan fjölbreytt úrval vítamína, steinefna og bætiefna fyrir fólk á öllum aldri og mismunandi æviskeiðum.

Og þróunin heldur áfram. Samhliða nýju útliti bætast nýjar vörur og nýjungar við Gula Miðann – með sama markmið að leiðarljósi: að gera vönduð vítamín og bætiefni aðgengileg á góðu verði.

Guli Miðinn – fyrir heilsuna í 40 ár.