
Resorb nú hjá Heilsu
Resorb er þekkt vörumerki sem hefur verið á íslenskum markaði um árabil og kannast margir við vörurnar. Vörumerkið var fyrst kynnt í Svíþjóð árið 1993 og var upphaflega þróað sem vökvauppbót til að styðja við endurheimt vökva- og saltajafnvægis líkamans.
Til að byrja með verða fimm vörunúmer úr Resorb-línunni í vöruframboði Heilsu, fjögur vörunúmer úr Resorb Original línunni og ein vara úr Resorb sport línunni
Resorb Original – Endurvökvun (rehydration)
Resorb Original eru freyðitöflur með raflausnum (electrolytes) og glúkósa sem henta vel þegar bæta þarf upp vökva- og raflausnatap, til dæmis vegna mikillar svitamyndunar, uppkasta eða niðurgangs. Fæst í mörgum frískandi bragðtegundum og er glútenlaust, án mjólkurafurða og soja.
Resorb Sport – Áreynsla og endurheimt (performance and recovery)
Resorb Sport er duft með raflausnum, kolvetnum og magnesíumi sem hentar vel fyrir, á meðan eða eftir líkamlega áreynslu eða mikla svitamyndun. Kolvetna- og raflausnalausnir (carboelectrolytes) stuðla að upptöku vatns við líkamlega áreynslu. Magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og orkuefnaskiptum og hjálpar til við að draga úr þreytu og örmögnun. Fæst með frískandi sítrusbragði.




