Próteinrík súkkulaðikaka sem er samt algjört „trít“
Innihald:
- 1 dós (400gr) svartar baunir frá Biona – skolaðar
- 2/3 bolli Biona dökkt súkkulaðismjör (dark schocolate spread)
- 1/3 bolli Biona lífrænn kókossykur
- 1 msk vanillu extrakt eða 1 tsk vanilluduft
- ¼ tsk salt
- ½ bolli kakóduft
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 1/3 bolli saxað súkkulaði frá Vivani (að eigin vali)
Aðferð:
- Hitaðu ofninn að 165°C og klæddu ferkantað form með bökunarpappír (ca. 20x20cm)
- Settu svartar baunir, súkkulaðismjör, sykur og vanillu í blandara eða matvinnsluvél og láttu vélina ganga þar til blandan er silkimjúk.
- Bættu við salti, kakódufti og vínsteinslyftidufti og blandaðu vel saman.
- Taktu frá handfylli af saxaða súkkulaðinu og hrærðu restinni samana við með sleif.
- Helltu deiginu í formið, jafnaðu það út og stráðu restinni af súkkulaðinu yfir.
- Bakaðu í 25-30 mín.