Fara í meginmál

Meltingargerlar Forte

Meltingargerlar Forte inniheldur 5 tegundir af góðgerlum með samtals 10 milljarða gerla í hverju hylki. Varan styður við eðlilega þarmaflóru og almenna meltingu og er góð viðbót eftir sýklalyf eða magapesti.

Meltingargerlar Forte er öflug blanda af 5 mismunandi góðgerlastofnum sem vinna saman að því að styðja við jafnvægi í þarmaflórunni. Hvert hylki inniheldur 10 milljarða gerla sem geta hjálpað til við að viðhalda heilbrigðu jafnvægi í meltingarkerfinu.

Góðgerlar eru lifandi örverur sem eru hluti af náttúrulegri þarmaflóru líkamans. Þeir eru oft notaðir til að styðja við meltingu, sérstaklega eftir álag á meltingarkerfi, til dæmis eftir sýklalyfjanotkun eða tímabundin óþægindi í maga.

Meltingargerlar Forte er einföld og þægileg leið til að styðja við daglega meltingu og almenna vellíðan.

1 hylki á dag með máltíð

Virk efni (bifidobakterium lactis, lactobacillus acidophilus, Lactobacillus salivarius, Lactobacillus plantarium, Lactobacillus casei), mysa. Jurtahylki (hýprómellósi), bindiefni (örkristallaður selluósi), kekkjavarnarefni (kísildioxíð, magnesíumsterat).